151. löggjafarþing — 73. fundur,  24. mars 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[22:18]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir. Þetta er fín umræða. Af því að hæstv. ráðherra fer yfir það góða sem er að gerast í nýsköpun í bændastéttinni og í landbúnaði víðs vegar um landið, þá er það einu sinni svo að litlu sprotarnir koma af því að fólk er hugmyndaríkt, af því að fólk vill bjarga sér og það koma hugmyndir. Það er síðan það hvernig við byggjum kerfið sem ræður úrslitum um hvort þessir sprotar verða að einhverju og þar hef ég áhyggjur vegna þess að núverandi kerfi vinnur beinlínis gegn svona hugmyndum oft og tíðum. En það er gott að vita að hæstv. ráðherra er með puttann á púlsinum. Það er fullt af verkefnum í gangi, þau þurfa bara að raungerast og þessi breyting þarf að verða.

Mig langar að ræða aðeins um sjávarútveginn og taka stjórnarskrána með vegna þess að að mínu mati hefur nú komið í ljós að auðlindaákvæði hæstv. forsætisráðherra, sem er eitt af þessum stóru prinsippmálum samfélagsins, er gagnslaust. Það er útþynnt. Í öllum tilfellum þegar nýta á sameiginlegar auðlindir eru afnotin bundið við tiltekinn tíma nema í sjávarútvegi. Það er eina sérreglan sem kemur í stað þessarar almennu reglu. Verði þessi tillaga að lögum og hún staðfest aftur eftir kosningar er ljóst að það munu engar efnislegar breytingar eiga sér stað. Þetta er a.m.k. ekki skref í átt að aukinni sátt um sjávarútveginn og ég óttast að þetta útspil ríkisstjórnarinnar muni ýfa upp ósætti og sundrung. Það er tímabært að setjast við borðið og eiga opið samtal um það hvernig hægt er að finna fleti og leita leiða til að kveða niður þá tortryggni sem ríkir um þessa grein. Það þarf ekki að kollvarpa einu eða neinu. Það er hægt að nálgast þetta á annan og málefnalegri hátt.

Ég spyr ráðherra: Getur hann tekið undir það að tímabundnir samningar væru gott skref í þá átt? Þeir gætu verið til 25 ára. Það er nú öll kollvörpunin ef menn vilja kalla þetta það. Þetta myndi auka fyrirsjáanleika útgerðarinnar. Þeim samningum sem gerðir væru væri ekki haggað á þeim tíma. (Forseti hringir.) Væri það ekki betra fyrirkomulag fyrir þessi mikilvægu fyrirtæki okkar í sjávarútveginum (Forseti hringir.) í stað þess að búa við þá óvissu, það umtal og geðþóttaákvarðanir stjórnvalda sem þau búa við í dag?