151. löggjafarþing — 74. fundur,  25. mars 2021.

framkvæmdir í samgöngumálum.

[13:13]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að fara yfir helstu stefnumál ríkisstjórnarinnar í innviðauppbyggingu. Staðreyndin er sú að á kjörtímabilinu höfum við á hverju einasta ári varið til vegamála að meðaltali 17 milljörðum meira en árin þar á undan. Við höfum aukið framkvæmdafé til hafna um 300%. Það voru 400 milljónir á árunum áður en þessi ríkisstjórn tók til starfa en eru núna 1.700 milljónir árlega. Ég veit að hv. þingmaður ferðast um landið, ekki síst kjördæmi okkar, og sér allar framkvæmdirnar sem eru í gangi. Ég ætla að vera, eins og hv. þingmaður, svolítið spurningarmerki í framan yfir þessum skilgreiningum Hagstofunnar. Eru nákvæmlega sömu leiðir notaðar við að greina fjárfestingu?

Það er engin spurning að framkvæmdir í samgöngukerfinu hafa aldrei verið meiri. Það veit hv. þingmaður. Hann sér það, hann keyrir fram á þær, hann sér vegavinnutækin í gangi. Hann veit að í hafnarmálum hefur aldrei verið gert eins mikið. Hann sér það, hann hefur heimsótt staðina og hann þekkir það. Tölurnar tala auðvitað sínu máli.

Við höfum líka verið í umtalsverðum fjárfestingum í nýsköpun. Er það skilgreint sem fjárfesting af Hagstofunni? Þetta eru hlutir sem þurfa frekari greiningar við þannig að þessi kerfi okkar veiti okkur sömu upplýsingarnar.

En það er engin spurning, hv. þingmaður, að við höfum svo sannarlega staðið við þau markmið að setja verulegan kraft í innviðauppbyggingu. Þess sér stað allt í kringum landið. Þar á meðal eru stofnleiðirnar þrjár sem hann nefndi þar sem við lögðum sérstaka áherslu á að aðskilja akstursstefnur. Allar þær framkvæmdir eru í gangi, langt komnar eða munu klárast á næstu árum.