151. löggjafarþing — 74. fundur,  25. mars 2021.

framkvæmdir í samgöngumálum.

[13:15]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Hann gerir helst athugasemdir við skilgreiningar Hagstofunnar og mat hennar. Það á sem sagt að skjóta sendiboðann. Við erum ekki að tala um aukningu, eins og hæstv. ráðherra gerir hér, hann talar um aukningu, heldur erum við að tala um samdrátt, 10% tvö ár í röð, herra forseti. Og við ætlum að skjóta sendiboðann, Hagstofuna: Þetta er eitthvað vitlaust hjá þeim.

Framkvæmdir á örmjóum hringveginum á Kjalarnesi hafa gengið afskaplega hægt. Ekkert bólar á tvöföldun Reykjanesbrautar við álverið þar sem vegurinn er ein akrein í hvora átt á rúmlega 5 km kafla, að ógleymdum vegarkaflanum að flugstöðinni. Ekkert bólar á framkvæmdum við hringveginn ofan Rauðavatns þar sem langur spotti er einbreiður. Kláraður var 3 km kafli austan Hveragerðis en ekkert bólar á framkvæmdum við Ölfusárbrú.

Furðulegast ástandið er þó hér í Reykjavík. Ekkert bólar á neinum mislægum gatnamótum í Reykjavík og auðvitað ekki á Sundabraut. Hvergi er unnið að neinum stokkum. Það áttar sig auðvitað enginn á þessu samkomulagi um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu. (Forseti hringir.) Þetta gerist allt mjög hægt, herra forseti, á hraða snigilsins. Nú er ríkisstjórnin að klára sitt fjórða ár — fjórða ár: Verða þá þessar framkvæmdir verkefni næstu ríkisstjórnar?