framkvæmdir í samgöngumálum.
Virðulegur forseti. Ég er að hugsa um að leggja það til að ég bjóði hv. þingmanni með mér á rúntinn og sýni honum framkvæmdirnar, ef hann trúir þessu ekki. Ég var ekki að skjóta sendiboðann, ég var ekki að segja að Hagstofan væri að gera eitthvað rangt. Ég var bara að segja að mismunandi kerfi segðu okkur mismunandi hluti. Það er staðreynd að við höfum aldrei séð aðrar eins framkvæmdir í samgöngumálum, það á líka við á höfuðborgarsvæðinu. Það er allt að fara í gang þó að ekki sé verið að klippa borða daginn út og inn, það er ekki það sem mér finnst vera mikilvægast í lífinu. Við tókum t.d. stóran kafla á Reykjanesbrautinni í gagnið. Þar var ekkert húllumhæ, þar voru ekki borðaklippingar. En ef hv. þingmaður saknar þeirra skal ég bara taka hann með mér á rúntinn og sýna honum framkvæmdirnar. Á hverjum einasta degi njóta tugþúsundir manna meira umferðaröryggis þegar þeir fara um nýjar framkvæmdir sem búið er að klára eða verða fyrir töfum vegna framkvæmda sem eru í gangi. Það er staðreyndin. Það er með öðrum orðum allt í gangi. Það góða er að við erum líka búin að tryggja að (Forseti hringir.) þetta framkvæmdastig haldi áfram á næstu árum af því að þetta er ekki átaksverkefni sem menn fara í á einu kjörtímabili, klippa á borða og setjast svo í helgan stein. Þetta er stórt verkefni og við höfum hafið það.