framlög til loftslagsmála.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Þegar þessi ríkisstjórn tók við var strax settur stóraukinn metnaður í loftslagsmálin. Það hefur ekki síst sýnt sig með stórauknum fjárframlögum til málaflokksins. Ef við horfum á breytinguna frá 2017–2026, sem ég mun fara yfir í máli mínu á eftir við umræðu um fjármálaáætlun, er aukningin til umhverfismála á málefnasviði 17 nærri því 70% á tímabilinu. Mjög stór hluti þess hefur farið í loftslagsmál. Hv. þingmaður vitnar hér til þess að framlögin lækki eftir því sem líður á tímabil fjármálaáætlunarinnar en þar er verið að horfa til þess að framlög sem talin eru inn sem ívilnanir lækka frá og með árinu 2024, einfaldlega vegna þess að það er ekki búið að taka ákvarðanir, ákvarðanirnar ná ekki lengra sem snúa að ívilnunum fyrir umhverfisvænni bifreiðar. Að sjálfsögðu mun sú ríkisstjórn sem tekur við eftir næstu kosningar þurfa að taka afstöðu til þess hvort það sé nauðsynlegt að fara áfram í þær ívilnanir. Ef raunin verður sú að það þurfi enn þá að gefa afslætti til að ýta undir þá þróun sem við öll viljum sjá í orkuskiptum þá held ég að sú ríkisstjórn, hver sem hún verður, muni taka skynsamlegar ákvarðanir í því. Að því sögðu er ekki um lækkanir að ræða í málaflokknum. Fjármagn til loftslagsmála hefur verið stóraukið. Ef við horfum á beinu framlögin sem hafa komið inn í gegnum umhverfisráðuneytið erum við reyndar að tala um 800% hækkun frá 2017 og fram til þess tíma sem fjármálaáætlunin núna nær. Það er auðvitað glæsilegur árangur sem ég held að við eigum öll að horfa til með stolti.