fjármálaáætlun 2022--2026.
Herra forseti. Það er ekki auðvelt að koma hér upp og ræða um fjármálaáætlun til næstu ára við núverandi aðstæður. Hún er óskýr og hún er endurtekið efni að mestu leyti, endurtekið efni ríkisstjórnar sem hverfur frá völdum innan skamms og virðist kæra sig kollótta. Loftslagsváin er stærsta áskorun sem mannkynið hefur staðið frammi fyrir. Þetta þekkir ráðherra umhverfismála ýkja vel. Við eigum í baráttu við hamfarahlýnun, sum lönd tala um neyðarástand, og ekki verður vikist undan því og ekki skilið frá að við erum jafnframt að glíma við baráttuna gegn ójöfnuði á heimsvísu. Þarna berum við Íslendingar líka ábyrgð.
Það er mikið gert úr því að til loftslagsmála eigi að fara 1 milljarður kr. á ári samkvæmt fjármálaáætlun. Hvað þýðir þetta, í hvað þætti fer þetta fé? Eru þetta óskilgreindir þættir eða er hluti af þessu hin almennu verkefni eins og skógrækt, ágætt verkefni, eða er það líka borgarlína, telst það vera hluti af þessu milljarðaframlagi?
Samkvæmt nýrri skýrslu McKinsey þurfa Evrópuþjóðir að setja um 5,8% af landsframleiðslu í fjárfestingar sem minnka losun, til að eiga möguleika á að mæta skyldum sínum. Ef að við horfum til McKinsey-skýrslunnar þyrfti um 174 milljarða á ári til að draga úr losun ef við heimfærum þessa prósentu á Ísland. Það er tuttuguföld upphæð sem er tiltekin fyrir árið 2026.
Hvar eru nýjar og róttækar aðgerðir á tímum hamfarahlýnunar? Hvernig verður hægt að ná metnaðarfullum markmiðum ríkisstjórnarinnar með þessu lagi? Erum við kannski bara í svona góðum málum? Það er áhyggjuefni að þessi fjármálaáætlun, eins langt og hún nær, gerir hreinlega ráð fyrir að dregið verði úr framlögum og ívilnunum til loftslagsmála á næstu árum. Er ekki eitthvað bogið við það?
Virðulegur forseti. Ég leyfi mér að grípa til fleygra orða sem oft falla af vörum annars hv. þingmanns hér í ræðustól: Hvernig í ósköpunum stendur á þessu?