151. löggjafarþing — 74. fundur,  25. mars 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[15:27]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir gott innlegg í umræðuna. Það sem hv. þingmaður nefnir sérstaklega er hvar almenningur og fyrirtæki koma meira inn í þetta, ekki bara það sem snýr að stjórnvöldum. Það fjármagn sem hér er um að ræða í umhverfismálin, og vil ég þá nefna bæði það sem fer í hringrásarhagkerfið, það sem fer til loftslagsmálanna og það sem er frádráttur eða lækkun á tekjuhliðinni, fer t.d. til grænna fjárfestinga og ívilnana, er allt saman eitthvað sem nýtist bæði almenningi og fyrirtækjum í landinu. Það er mjög mikilvægt að við horfum á það með þeim augum. Þannig er hið opinbera að ýta undir grænar fjárfestingar með frumvarpi fjármálaráðherra sem hér var lagt fram fyrir áramót, verði það að lögum. Stjórnvöld ýta undir grænar fjárfestingar með því að auglýsa styrki til eflingar hringrásarhagkerfinu, svo dæmi sé tekið, þar sem við setjum fjármagn inn til að geta framfylgt mikilvægum lagabreytingum í frumvarpi sem mun líta dagsins ljós eftir páska og fjallar m.a. um úrgangsmál. Þá hafa stjórnvöld tekið upp sérstakt samstarf við fyrirtækin í landinu í gegnum Grænvang sem stefnir að því m.a. að skila tillögum um hvernig mismunandi atvinnugreinar geti náð kolefnishlutleysi árið 2040 og eigum við von á því að sjá það núna í sumar.

Aðeins til að koma inn á það sem hv. þingmaður nefndi með ártölin 2026 eða 2031 (Forseti hringir.) þá ákváðum við að setja þetta fram með þessum hætti einfaldlega vegna þess að skuldbindingartímabil Parísarsamkomulagsins er út árið 2030 og því þótti okkur rétt að setja þetta fram svona, en einfaldir reikningar sýna auðvitað að þegar það er milljarður á ári eru það 5 fyrir það tímabil sem nú er um að ræða.