151. löggjafarþing — 74. fundur,  25. mars 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[15:29]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svörin, kannski sérstaklega svarið um tímabilið og forsendur þar að baki og að upphæðin sem um ræðir sé þá 5 milljarðar. Gott að heyra svör hans varðandi þau sjónarmið sem ég rakti í fyrri ræðu og að það sé ýmislegt í pípunum. Ég sakna þess kannski að ramminn til að vinna að þessu liggi ekki alveg ljós og skýr fyrir í ljósi þess að kjörtímabilið er næstum því á enda. Þetta er síðasta fjármálaáætlun þessarar ríkisstjórnar og tíminn hefur verið til staðar. En mér fannst margt gott í því sem fram kom í máli hæstv. ráðherra. Forgangsröðun í loftslagsmálum verður í mínum huga að vera byggð á bestu mögulegu gögnum og byggja á því hvaða aðgerðir ná bestum árangri á skemmstum tíma og vitaskuld við bestu aðstæður með lægstum tilkostnaði. Til þess að ná því held ég að þurfi náið samstarf milli umhverfisráðuneytisins og annarra ráðuneyta, sérstaklega efnahags og atvinnumála, en líka náið samstarf við sveitarfélögin um aðgerðir, t.d. á borð við borgarlínu, og aðgerðir á borð við þéttingu byggðar sem eru a.m.k. sumpart umhverfismál. En til þess að tryggja raunverulegan árangur held ég að það þurfi alltaf að horfa mjög fast til þess að atvinnulífið sé fengið að borðinu. Það á að vera auðvelt og það á að vera eftirsóknarvert að taka þátt í grænum framförum. Lykilatriði í því held ég að sé að hækkun gjalda vegna loftslagsmála verði ekki bara að nýjum stórum tekjustofni fyrir ríkissjóð heldur að önnur gjöld verði lækkuð til jafns á móti þannig að hægt sé að ná sátt um loftslagsaðgerðir á breiðum grunni og tryggja nauðsynlega samstöðu um þetta gífurlega mikilvæg mál.

Það væri óskandi að fá skýrari tillögur og mælanleg markmið fyrir atvinnulífið og heimilin. Þess vegna vil ég spyrja ráðherra (Forseti hringir.) nú hvort hann muni leggja til eða hvort þess sé að vænta að fá skýrt og tímasett plan um stuðning ríkisstjórnarinnar við heimilin og fyrirtækin í þágu þessa mikilvæga markmiðs áður en kjörtímabilinu lýkur.