151. löggjafarþing — 74. fundur,  25. mars 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[15:37]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir innleggið í dag og ætla að byrja á því að nálgast spurningu hans um kortlagningu á áhættu vegna skógarelda. Fyrst er um það að segja að þetta er talsvert mismunandi eftir landshlutum og hv. þingmaður nefndi m.a. Skorradalinn. Þar þekki ég ágætlega til því að það er nálægt minni gömlu heimasveit. Ég veit til þess að það er áhættumat í vinnslu en nákvæmlega hvar það er statt get ég því miður ekki greint hv. þingmanni frá akkúrat núna. Við erum misjafnlega í stakk búin að takast á við þetta eftir því hvar er en það er alveg klárt mál að með loftslagsbreytingum er ákveðin hætta á því að skógareldar gætu aukist. Þar geta líka spilað inn í ágengar framandi tegundir, það getur verið mikill eldsmatur í þeim. Ég nefni lúpínuna sem dæmi.

Varðandi hitt atriðið sem hv. þingmaður kom inn á er ljóst að Ísland mun þurfa að kaupa svokallaðar losunarheimildir vegna uppgjörs Kyoto-tímabilsins frá 2013–2020. Þegar núverandi ríkisstjórn tók við og setti stóraukinn kraft í loftslagsmálin þá var ekki nóg til að geta náð árangrinum fyrir þann tíma en við teljum hins vegar að við munum uppfylla okkar skuldbindingar vegna Parísarsamkomulagsins árið 2030. Það er markaður með losunarheimildir sem fyrirtækin þurfa að standa skil á og ég kem inn á það í seinna svari.