fjármálaáætlun 2022--2026.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið. Þetta er auðvitað ekki síðasta árið okkar í þessi verkefni.
Mig langar til að nýta tækifærið í samtali við hæstv. ráðherra og ræða um sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga. Umhverfis- og samgöngunefnd er nú með mál frá hæstv. ráðherra sem felur í sér heimild ráðherra til að setja skipulagsreglur fyrir flugvelli sem ganga framar skipulagsrétti sveitarfélaga. Sem dæmi yrði Reykjavík einfaldlega svipt skipulagsvaldi á Reykjavíkurflugvelli. Það felst grundvallarbreyting í þessu sem gengur þvert á gildandi lög og felur í sér fordæmi þar sem almennar skipulagreglur geta vikið lögum til hliðar. Ég sé ekki betur en að með þessu sé farið þvert á samkomulag ríkis og borgar um framtíðarskipulag innanlandsflugsins.
Ég nefni þetta hér í samhengi við annað sem ég kem síðan að. Ég hef ekki orðið vör við varúðarorð eða andstöðu stjórnarþingmanna við þetta tiltekna inngrip í skipulagsmál sveitarfélaga. Ég hef frekar heyrt þessu fagnað ef eitthvað er. En það eru fleiri mál sem verið hafa í sviðsljósinu á þessu kjörtímabili nákvæmlega vegna þessa sama inngrips, ég nefni lögbundna sameiningu sveitarfélaga, sem ráðherra þekkir, og síðan frumvarp umhverfisráðherra um hálendisþjóðgarð. Þar hafa stjórnarþingmenn, t.d. hæstv. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, verið meðal þeirra sem gagnrýnt hafa inngripið og verið með þá eindregnu afstöðu að sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga þurfi að virða. Mér þykir því einsýnt að biðja um heildarsýn ráðherra þegar kemur að skipulagsmálum sveitarfélaga og samspili ríkis og sveitarfélaga þar að lútandi. Ég vil ekki trúa því að sú sýn, og ég ætla bara að orða það eins og þetta kemur fyrir, fari eftir því hvaða sveitarfélög um ræðir. En ég stend líka hér sem þingmaður Reykvíkinga og hef áhyggjur af því að sú mynd sé að málast upp. Ég óska þess og vona að hæstv. ráðherra geti hreinlega létt af mér og öðrum Reykvíkingum þeim áhyggjum með því að fara aðeins yfir málin á þeim stutta tíma sem hann hefur til umráða.