fjármálaáætlun 2022--2026.
Virðulegi forseti. Við erum hér að tala um lækkun upp á tæplega 14% í framlögum til menningar, lista og íþrótta- og æskulýðsmála á næstu fimm árum. Við áttum orðastað um þetta við svipaðar kringumstæður, ég og hæstv. ráðherra, í október síðastliðnum, í umræðum um fjármálaáætlun. Þá sagði hæstv. ráðherra þessi orð, með leyfi forseta:
„Það skiptir mjög miklu máli að framlögum til lista og menningar sé haldið á þeim stað. […] Við munum endurskoða ríkisfjármálaáætlun áður en kjörtímabilinu lýkur og ég hef hug á því að skoða þennan þátt frekar.“
Það eru mér því nokkur vonbrigði að við sjáum ekki breytingar á þessu og mig langar til að inna hæstv. ráðherra eftir því hvað veldur.