fjármálaáætlun 2022--2026.
Virðulegur forseti. Þegar við horfum á þetta málefnasvið er máltækniverkefnið eitt af því sem við höfum farið í og verið að klára. Það var eitt af því sem við fjölluðum um og fjárfestum í og var nefnt í stjórnarsáttmálanum. Nokkrum málum er lokið. Til að mynda erum við að klára máltækniverkefnið og þess vegna sjáum við ákveðna lækkun þarna. En það sem við höfum verið að gera, líka út af þessum sérstöku aðstæðum sem við höfum verið í, er að við höfum verið að miða við fjárlögin og farið í aukningar út frá hverju ári fyrir sig. Ég er sammála hv. þingmanni að þegar verður farið í fjárlagavinnuna fyrir árið 2022 þurfi menningin að halda sér. Það er mín skoðun á þessu. Ég stend við hana. Ég vil líka nefna að ríkisstjórnin hefur verið að leggja sérstaka áherslu á þetta málefnasvið, eins og við sjáum. Við höfum séð 25% raunaukningu á kjörtímabilinu. Við stöndum við það. Þegar við horfum til framtíðar eru þetta áherslurnar sem við höfum verið að leggja, til að mynda minn flokkur, Framsóknarflokkur, og ríkisstjórnin. Við höfum verið að setja fjármuni í þennan málaflokk og við munum að sjálfsögðu halda áfram að gera það.