fjármálaáætlun 2022--2026.
Virðulegur forseti. Spurt er um háskólastigið. Við ákváðum það í ríkisstjórninni í upphafi kjörtímabilsins að við myndum fjárfesta í háskólastiginu. Við höfum aukið fjárframlög til þess á kjörtímabilinu um 14% að raunvirði. Við höfum líka ákveðið það og fórum í það vegna Covid-19, að auka aðgengi og veita fjármagn vegna allra nemenda sem eru að koma inn í kerfið. Við höfum verið að vinna með háskólastiginu að því hvernig við komum enn frekar til móts við þessar sérstöku aðstæður. Námsmatið hefur verið sveigjanlegt. Við höfum unnið í því með Menntasjóðnum, þ.e. að veita lán fyrir sérstakar einingar sem nemendur hafa klárað. Við höfum farið í bjóða upp á sumarnám og eflt sumarstörfin þannig að við höfum sett það sem sérstakt markmið að ná utan um unga fólkið okkar vegna þess að við vitum hversu mikil áskorunin er fyrir þau. Þess vegna höfum við farið í þessa vinnu með markvissum hætti. Þannig að já, við höfum tekið tillit til þess í samvinnu við háskólastigið varðandi námsmatið. Það sem við höfum séð, sem er auðvitað mjög ánægjulegt, er að nemendur hafa skilað sér betur, bæði inn í kerfið okkar og líka út úr því þrátt fyrir þessar aðstæður. Það hefur gerst vegna þess að við höfum sett verulega fjármuni í það.