151. löggjafarþing — 74. fundur,  25. mars 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[17:16]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Eins og hv. þingmaður gerir sér líklega grein fyrir hefur ríkisstjórnin farið í mikla aukningu er varðar menntamálin. Við höfum aukið framlög til menntamála á tímum Covid gríðarlega. Þetta þekkir hv. þingmaður. Ég ætla aðeins að fara yfir nokkrar tölur af því að það er mjög mikilvægt þegar við erum að fara inn í stór mál að við áttum okkur á þeim. Ef við lítum á háskólastigið höfum við þar farið úr 46 milljörðum í 52. Við höfum svo sannarlega staðið við stóru orðin og fjárfest í menntakerfinu. Áttar hv. þingmaður sig á því en er ekki tilbúinn til að líta á þá fjárfestingu sem við höfum farið í? Við munum halda áfram. Ég get lofað hv. þingmanni því að Framsóknarflokkurinn mun halda áfram að fjárfesta í menntun. Við höfum sýnt að við höfum getu og burði til þess. Mig langar líka til að nefna það að eins og hv. þingmaður gerir sér grein fyrir munum við taka tillit til þeirrar raunaukningar sem hefur átt sér stað bæði á framhaldsskólastiginu og háskólastiginu. Tölurnar tala sínu máli. Hér er geta, hér er þor og hér er kjarkur.