fjármálaáætlun 2022--2026.
Virðulegi forseti. Málsmeðferðartími hefur lengi verið í deiglunni og m.a. til umræðu í þessum sal. Nýlega fékk málsmeðferðartíminn á sig hið pólitíska kastljós þegar fréttir bárust af sérstöku verkefni af hálfu dómsmálaráðherra um vinnu við að rýna málsmeðferðartíma í efnahagsbrotamálum. Sú vinna er auðvitað af hinu góða og ekkert við hana að athuga. En þessi vandi á við um alla brotaflokka og það eru dálítið sérstök skilaboð að taka allt annan brotaflokk fyrir en þann sem mest hefur verið til umfjöllunar vegna þessa vanda. Það er nefnilega enn reglulega að gerast að dómar fyrir alvarleg kynferðisbrot séu mildaðir á áfrýjunarstigi vegna þess að málin hafa dregist í kerfinu. Allir armar kerfisins verða að hafa burði til að vinna hratt án þess að gefa afslátt af gæðum. Þessi vandi hefur mesta þýðingu í þeim málum þar sem þungir dómar falla, eins og t.d. í nauðgunarmálum og í málum sem varða kynferðislega misnotkun á börnum. Það er eðlilegt að horfa á alla þá brotaflokka sem þetta á við um. Efnahagsbrotamálin eru vissulega þar á meðal en sannarlega ekki ein. Kynferðisbrotamálin eru í forgangi innan kerfisins en engu að síður er þetta staðan. Margt gott hefur verið gert og ekki síst af kerfinu sjálfu, ferlar styttir o.s.frv. En vægari dómar bara vegna málsmeðferðartíma — þetta má ekki gerast í ljósi hagsmuna þar að baki, hagsmuna brotaþola og hagsmuna samfélagsins alls. Þetta er að gerast og er hluti af okkar veruleika í dag. Það er gríðarlega þungbært fyrir þolendur að bíða lengi eftir svörum og dómstólarnir eru meðvitaðir um mannréttindi sakborninga hvað þetta varðar.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur farið með þetta ráðuneyti í sjö ár og allan tímann hefur þetta verið staðan. Ég átti samtal um þetta við ráðherra við umræður um síðustu fjármálaáætlun og hef átt áður. (Forseti hringir.) Þessi fjármálaáætlun boðar, sýnist mér, litlar breytingar, og ég verð að viðurkenna að það eru mér mikil vonbrigði.