fjármálaáætlun 2022--2026.
Virðulegur forseti. Það er alrangt hvernig hv. þingmaður setur þetta upp. Það er einmitt málshraðinn í þessum málum sem hefur verið sérstaklega í forgangi allt frá 2018 þegar aðgerðaáætlun um meðferð kynferðisbrota innan réttarvörslukerfisins var kynnt. Fyrsta verkið var að efla og fjölga stöðugildum. Það var fjölgað um 15 stöðugildi samanlagt á landsvísu og lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu fékk þau flest. Þetta hefur auðvitað verið í forgangi sérstaklega og þá líka afköst og árangur í því að stytta málsmeðferðartímann, m.a. með þessari fjölgun stöðugilda og ýmsum öðrum breytingum.
Ráðuneytið hefur kallað reglulega eftir upplýsingum um málshraðann í þessum málum og það hefur komið í ljós að það hefur gengið vel að stytta tímann. Í stuttu máli er það mat embættanna að margt hafi áunnist síðan þetta viðbótarfjármagn fékkst og góður árangur náðst en álagið hafi þó aukist. Fjöldi mála hefur aukist og við höfum stundum séð hátt í 50% aukningu milli ára hjá embættunum, sérstaklega hjá héraðssaksóknara. Þar er mikil áhersla lögð á að mál séu afgreidd hratt og örugglega og með síðustu stöðu sem ráðuneytið fékk eru aðeins tvö mál sem bíða afgreiðslu sem eru ársgömul og öll önnur eru yngri.
Ég er sammála hv. þingmanni um mikilvægi þess að stytta málsmeðferðartíma og það hefur verið í algjörum forgangi langt fram yfir aðra málaflokka oft og tíðum vegna þeirrar skýru aðgerðaáætlunar sem var sett fram undir forystu Sjálfstæðisflokksins í dómsmálaráðuneytinu sem hefur verið fylgt gríðarlega vel eftir síðustu ár. Við munum halda áfram á þessari braut. Við höfum meira að segja gengið lengra en aðgerðaáætlun kveður á um í lagasetningu, t.d. um umsáturseinelti og kynferðislega friðhelgi, en sérstaklega er rætt um mikilvægi þess að síðan verði farið að vinna frumvarp um kynferðislega friðhelgi, brot gegni henni, þannig að hér hefur árangur náðst. Við erum hvergi nærri hætt. Við vitum (Forseti hringir.) að við þurfum að ná enn meiri árangri í þessum málaflokki og þar verður eftirfylgni með aðgerðaáætluninni (Forseti hringir.) áfram algjört forgangsmál eins og sést bæði í fjármunum til embættanna (Forseti hringir.) og í stafrænni áætlun sem réttarvörslugáttin er í þessum málaflokki.
(Forseti (ÞorS): Forseti minnir hæstv. ráðherra og hv. þingmenn á tímamörk.)