151. löggjafarþing — 74. fundur,  25. mars 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[18:47]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Það má segja að viðbrögð í fjármálaáætlun við faraldrinum séu í tveimur eða þremur skrefum. Fyrstu viðbrögð eru hin eiginlegu viðbrögð heilbrigðiskerfisins. Við þurfum að sinna sýnatöku. Við þurfum að sinna úrvinnslu sýna, við þurfum að vera með nægilega mikið af tækjum o.s.frv. og svo þurfum við að tryggja þjónustu Covid-göngudeildar og huga að mögulegum innlögnum, öndunarvélum og slíku ef faraldurinn fer á flug. Það er heilbrigðiskerfið okkar sem verður að bregðast við og við gerum alltaf ráð fyrir því að bæta heilbrigðiskerfinu okkar að fullu það sem það þarf að glíma við vegna Covid.

Síðan erum við að tala um annars stigs áhrif, ef svo má að orði komast, þ.e. hverju við megum búast við að því er varðar ferðaþjónustu og annað. Það snýr ekki bara að stöðu okkar hér innan lands heldur líka að faraldrinum, hvernig hann gengur fyrir sig í löndunum í kringum okkur.

Ég tek undir það, sem hv. þingmaður segir og bendir á, að forsendurnar breytast mjög hratt. Þinginu er fært allnokkurt verkefni vegna þess að ekki er nóg með að forsendur breytist hratt frá degi til dags heldur er okkur líka ætlað samkvæmt lögum að gera áætlun til margra ára. Eins og ég nefndi áðan í framhjáhlaupi vitum við ekki nema við verðum í þeirri stöðu að ári að þurfa aftur að bólusetja vegna þess að veiran muni koma með reglubundnu millibili, en við höfum þá kannski betri stjórn á henni. Ég held að það sé töluverð áskorun að fara í gegnum þetta.

Af því að hv. þingmaður spurði líka um vandann hjá Landspítala varðandi útskriftir þá er hann samsettur og snýst um flæði innan húss en líka um það að hafa nægilega fjölbreytt úrræði; endurhæfingarúrræði, (Forseti hringir.) heimahjúkrun, heimaþjónustu, hjúkrunarrými o.s.frv. Við höfum verið að bæta við í öllum þeim úrræðum og vonandi náum við í skottið á okkur.