151. löggjafarþing — 74. fundur,  25. mars 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[19:20]
Horfa

utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Aftur þakka ég hv. þingmanni fyrir málefnalegt og gott innlegg. Það er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni að verkefnunum mun ekki fækka, það liggur alveg fyrir. Hv. þingmaður vísaði til varnarmannvirkjanna. Þegar komið hefur fram mótframlag frá Íslandi er það eitthvað sem hefur verið samið um og það hefur ekki verið samið um slíkt þótt hins vegar liggi alveg fyrir að endurnýjunarþörf er mikil og algjörlega ljóst að fara verður í slík verkefni og það verður gert. Þegar kemur að verkefnum og væntingum hefur sýn mín verið sú að ef maður ætlar að tala um hinn íslenska diplómat þá verður sá einstaklingur, sama hver það er, að gera miklu meira en kollegar hans í flestum öðrum löndum. Einhver kynni að segja: Er það ekki mjög ósanngjarnt? En þetta er bara það sem það þýðir að vera Íslendingur. Ef við ættum að alhæfa um íslenska diplómatinn þá hefur hann mun fjölbreyttari þekkingu og reynslu vegna þess að flæðið innan ráðuneytisins, þessa litla ráðuneytis, er svo miklu meira. Það er mjög algengt að fólk hafi starfað á ýmsum sviðum, í viðskiptamálum, varnarmálum og núna þróunarsamvinnunni. Hv. þingmaður hafði forgöngu um það sem ráðherra, og ég tel að það hafi verið mikið gæfuspor, að sameina þróunarsamvinnuna og utanríkisráðuneytið. Það hefur nýst okkur mjög vel, m.a. í borgaraþjónustuverkefnum. Núna erum við líka, vegna þess að þessi samþætting hefur náð fram að ganga, að nýta mannauðinn enn frekar. Ég held að verkefni okkar núna, ekki bara í utanríkisráðuneytinu heldur líka annars staðar, sé að leita leiða til að nýta þá fjármuni og þann mannauð sem er til staðar með betri hætti en áður hefur verið gert. Það er auðvitað eilífðarverkefni og ég hef beitt mér fyrir því en það verður enn þá meira krefjandi verkefni á næstu árum.