fjármálaáætlun 2022--2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir bæði góða og skemmtilega ræðu. Þetta eru því miður ekki tröllasögur þegar kemur að lyfjamálum. Þetta er nákvæmlega endurtekning á því sem var með lækningatækin. Evrópusambandið setti okkur og Noreg á lista, og þó að útflutningsbannið sé ekki komið fram þá er þetta rammi utan um það, og það stenst ekki EES-samninginn að setja hugsanlega einhverjar slíkar takmarkanir. Það var mjög gott og við fögnum því að fá þessi snörpu viðbrögð frá formanni framkvæmdastjórnarinnar um að þetta eigi ekki að hafa áhrif á okkur en við erum þarna. Þetta var líka sagt við okkur síðast og síðan þegar hagkerfið fór að virka voru það Svíarnir, einhver samviskusamur embættismaður — eða ekki, sem stoppuðu lækningatækin til Noregs. Ég hef ráðfært mig við norska utanríkisráðherrann og við höfum af þessu miklar áhyggjur. Ég hef átt samtöl við fimm ráðherra í dag fyrir utan það að við erum búin að beita utanríkisþjónustunni, kalla sendiherra ESB til fundar og gerðum það strax þegar reglugerðin kom fram vegna þess að við höfum virkilegar áhyggjur af þessu og viljum fá þetta út af því að þetta er ekki í samræmi við EES-samninginn.
Við eftirlátum engum að gæta hagsmuna okkar, þetta er pínulítill misskilningur hjá hv. þingmanni. Það sem við erum búnir að gera á þessu kjörtímabili er að stórefla hagsmunagæsluna gagnvart EES-samstarfinu og þar af leiðandi gagnvart Evrópusambandinu að stórum hluta. Við settum af stað ákveðna vinnu og tillögur sem hefur að stærstum hluta verið framfylgt og fela m.a. í sér að það eru fulltrúar allra ráðuneyta í Brussel að fylgjast sérstaklega með því hvað gerist á EES-vettvanginum á fyrstu stigum þegar við höfum mest áhrif á hagsmuni okkar. Þannig að við höfum svo sannarlega styrkt þann þáttinn enda ekki vanþörf á, því að það er enginn sem gætir hagsmuna okkar annar en við sjálf.