151. löggjafarþing — 74. fundur,  25. mars 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[19:27]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég er sammála hæstv. ráðherra um að það er enginn sem gætir hagsmuna okkar annar en við sjálf og ESB gætir líka hagsmuna þeirra þjóða sem innan þess bandalags eru, ekki þeirra þjóða sem utan bandalagsins eru eða þeirra þjóða sem eru í gættinni, ef svo má segja.

Mig langaði hins vegar að nota seinni spurningu mína hér til að minnast aðeins á þróunarsamvinnu. Það er ánægjulegt og það er lofsvert að ekki sé verið að draga úr fjárframlögum í þróunarsamvinnu en við höfum talað fyrir því að stefna að því að ná 0,7% og meðan við höfum ekki náð því markmiði held ég að óhætt sé að segja að við stígum ekki nógu stór skref í þeim málum á næstu fimm árum. Mig langar til að spyrja hæstv. utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra hvenær við munum ná yfirlýstum markmiðum Sameinuðu þjóðanna.