151. löggjafarþing — 74. fundur,  25. mars 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[19:31]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Herra forseti. Ég ætla kannski að byrja á því að hrósa hæstv. utanríkisráðherra fyrir að bregðast hratt við þeim rangfærslum sem áttu sér stað varðandi takmarkanir á bóluefnainnflutningi til Íslands á dögunum. Það er eiginlega orðið hvimleitt hversu mikið þarf að halda því að öllum aðilum, bæði hér á landi og í Evrópusambandinu, að við erum hluti af innri markaðnum, að við erum svo gott sem aðilar að Evrópusambandinu hvað þetta atriði varðar. En þá koma leiðindin: Í ljósi ræðu hæstv. ráðherra, sem fór svolítið meira yfir hvað hefur gerst undanfarin ár, sem er kannski bara ágætisframboðsræða en segir ekkert um það hvað standi til í þeirri fjármálaáætlun sem við stöndum frammi fyrir, og í ljósi þess að það er engin uppfærsla á markmiðum samkvæmt málefnasviðinu innan fjármálaáætlunarinnar, verð ég að spyrja: Er ekkert sem hefur gerst að undanförnu, t.d. á undanförnu ári, sem gefur tilefni til að breyta aðeins um stefnu, t.d. í þróunarsamvinnumálum þar sem er greinilega ný og rík þörf út um allan heim, t.d. í varnarmálum þar sem við höfum séð að þau atriði í varnarmálum sem við höfum verið að leggja áherslu á eru ekki endilega jafn rík og önnur atriði sem snúa t.d. að heilbrigði þjóðarinnar? Svo er kannski ekki síst hægt að tala um stuðning við utanríkisviðskipti. Það er ljóst að margt hefur breyst þegar fundir eru farnir að færast að verulegu leyti yfir á fjarfundaform sem býður auðvitað upp á ný tækifæri fyrir utanríkisþjónustuna að tengja saman íslensk fyrirtæki og erlenda aðila, kannski ekki síst í fjarlægari löndum. Það væri gott að fá einhverja framtíðarsýn frá hæstv. ráðherra nema hún sé kannski leyndarmál.