151. löggjafarþing — 74. fundur,  25. mars 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[19:45]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir svarið og ítreka að það er auðvitað mjög gott að nýta hin góðu sambönd sem ég þykist vita að hæstv. ráðherra hafi við bresk stjórnvöld af ýmsum ástæðum.

Mig langar í síðari umferð að inna hæstv. ráðherra eftir því, af því að það skiptir líka svo miklu máli þegar við erum að reyna að tala um framtíðina, hvernig viðræðurnar við Breta gangi um samskipti Íslands og Bretlands eftir Brexit. Ég veit að hæstv. ráðherra hefur mikla trú á því að það felist gríðarleg tækifæri í því fyrir okkur Íslendinga að Bretar hafi farið úr Evrópusambandinu. Þess vegna langar mig í fyrsta lagi að inna hæstv. ráðherra eftir því hvernig þeim samningum miði. Í öðru lagi hvort það sé búið að gera sviðsmynd eða spá um það hvernig ramminn um viðskiptin mun verða og hvaða áhrif það mun hafa á viðskipti milli landanna tveggja. Og jafnframt, af því að það skiptir máli fyrir efnahag okkar og hvernig utanríkisviðskipti okkar koma til með að þróast, hvort ráðherra sé staðfastlega þeirrar skoðunar enn þá að þarna séu mjög víðtæk tækifæri sem séu að raungerast. Hefur það sem hefur verið að gerast í Bretlandi og í samskiptunum við Evrópusambandið o.s.frv., eitthvað breytt þeirri hugmynd ráðherrans? (Forseti hringir.) Telur hann enn að þessi tækifæri séu mjög mikil og stór eða hefur einhvern skugga borið þar á í ljósi reynslunnar?