151. löggjafarþing — 74. fundur,  25. mars 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[21:11]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að segja að mér finnst þetta hafa verið efnisrík umræða. Í því samhengi má hafa í huga að við erum í fyrsta skipti að ljúka kjörtímabilinu þar sem sama ríkisstjórnin teflir fram fjármálaáætlun í heilt kjörtímabil og nú sem sagt í aðdraganda kosninga. Þetta þingmál, fjármálaáætlun, ber þess merki að það er stutt til kosninga. Við vísum annars vegar til þess að við erum með nýsamþykkta fjármálaáætlun frá því í desember og svo hins vegar til kosninganna, sem eru eftir u.þ.b. hálft ár, þegar útskýrt er hvers vegna ekki er farið í alla vinnuna að nýju, einu sinni enn, eins og almennt er gert ráð fyrir við gerð fjármálaáætlunar. Ég ætla að vísa til þess sem ég sagði í framsöguræðu minni um þetta og ég tel að það hafi á engan hátt haft neikvæð áhrif á umræðuna hér. Ég held að við höfum haft mjög gott efni í höndunum til þess að fara yfir það sem mestu máli skiptir, sem er stóra efnahagsmyndin, við þessa umræðu. Ég ætla sömuleiðis að segja að mér finnst hafa tekist afar vel til í þessari fjármálaáætlun að draga fram það sem helst brennur á okkur núna í efnahagsmálum.

Eins og vænta mátti hafa verið uppi ólíkar skoðanir, mjög skiptar skoðanir á því hvort við erum á réttri braut eður ei. Það er ekkert nýtt. Í mínum huga er hins vegar ekki hægt að horfa fram hjá því að efnahagsspár sem birst hafa undanfarið ár hafa sífellt verið upp á við. Þar skiptir miklu máli og hefur haft áhrif að ríkisstjórnin ákvað snemma í þessu ferli að koma súrefni út í hagkerfið. Við tókum í fangið mikinn halla, sögðumst vilja gera það, nýta svigrúmið sem byggt hefur verið upp, styrkinn, viðnámsþróttinn í ríkisfjármálunum til að lina áhrifin, draga úr þeim, minnka þar með efnahagslægðina. Og við gerðum meira en það. Við fórum í beinar aðgerðir, fórum reyndar í sókn í innviðafjárfestingu og höfum síðan sniðið efnahagsaðgerðir fyrir heimili og atvinnulíf eftir aðstæðum eins og þær hafa þróast. Á þessu hafa aðgerðapakkar ríkisstjórnarinnar byggst, að við vorum í hverju skrefi að byggja á þeim upplýsingum sem við þá höfðum, og mér finnst það hafa tekist vel.

Hvað getur maður notað til vitnis um að vel hafi tekist til? Ja, ég hef hér verið að benda á þætti eins og hvernig tekjur heimilanna hafa þróast. Á bls. 31 í þessu riti er farið yfir það hvernig tekjur heimilanna hafa verið mun stöðugri en í síðustu kreppu. Þar munar mjög miklu. Ég hef sömuleiðis nefnt að fjárfesting og neysla innan lands hefur verið á allt öðru stigi en í síðustu kreppu, sem er til vitnis um bæði þróttinn í hagkerfinu en ekki síður trú á því sem fram undan er. Þar munar mjög miklu, eins og ég rakti í framsögu minni, og er mjög skýrt merki um að við erum á marga vegu í órafjarlægð frá þeirri stöðu sem var uppi 2009. Þetta er jákvætt og birtist okkur í hagspánni sem liggur til grundvallar. En það breytir ekki hinu sem ég hef haldið á lofti og ég heyri mjög mikið rætt um í þessari umræðu, að við erum að fást við mjög erfitt atvinnuleysi. Stundum er það bara þannig að upp koma aðstæður, í þessu tilviki heimsfaraldur, sem við getum á engan hátt haft væntingar um að við getum skotið okkur undan áhrifunum af, að við getum sveiflað einhverjum töfrasprota þar sem áhrifin af því að 2 milljónir ferðamanna hverfa út úr hagkerfinu þurrkast bara út og gufa upp og allir fái vinnu við hæfi beint í kjölfarið. Því miður er þetta ekki verkefni af því tagi að hægt sé að sveifla einhverjum slíkum töfrasprota yfir vandann. En það sem við höfum gert er að bregðast með mjög sterkum hætti með vinnumarkaðsaðgerðum við stöðu atvinnulausra. Án þess að ég fari að rekja allt það sem gerst hefur í því, allt frá hlutabótaleið yfir í lengingu tekjutengda tímabilsins og hækkun atvinnuleysisbóta og lækkun tryggingagjalds til að auka svigrúm fyrirtækjanna og ráðningarstyrkina og hvað allt það heitir, þá eru einmitt síðustu aðgerðir ríkisstjórnarinnar, sem félagsmálaráðherra hefur verið að kynna til sögunnar, af nákvæmlega sama meiði. Ríkisstjórnin hefur tekið til hliðar háar fjárhæðir til að styðja Vinnumálastofnun í að bjóða fyrirtækjum og stofnunum, sveitarfélögum, stuðning við að ráða til sín af atvinnuleysisskránni og meiri stuðning, sé um að ræða fólk sem hefur verið lengur atvinnulaust. Með þessu hefur okkur tekist ætlunarverkið; að draga úr dýpt efnahagslægðarinnar. En verkinu er engan veginn lokið.

Það er eðlilegt, ekki síst þegar við erum að ræða um fjármálaáætlun til framtíðar, að rætt sé hvort við séum á réttri braut. Ég vil meina að þær áherslur sem við höfum verið með, sem er að beita ríkisfjármálunum af fullum krafti, séu réttar, að skynsamlegt sé að fara í fjárfestingarátak, að bæta í við stuðning vegna nýsköpunar og þróunar, og að auka við endurgreiðslur sé sömuleiðis líklegt til þess að bera ávöxt þegar fram í sækir. Þessum megináherslum erum við einfaldlega að fylgja eftir með sama hætti og gert hefur verið hingað til, að hafa trú á því að það muni á endanum skila sér í uppskeru. Það hefur gert það hingað til. Það sýna tölurnar. Þetta er langlíklegasta leiðin fram á við til þess að halda áfram að skila árangri.

Sumir vilja meina að ríkisstjórnin leggi hér upp með of bratta áætlun, það séu ekki tekin nógu há lán. Hallinn megi gjarnan vera miklu meiri og að við séum að flýta okkur um of að ná efnahagsbata. Þessu svara ég með því að benda á að hallinn á yfirstandandi ári er met. Við erum með 40% halla af ríkisfjármálunum ef við berum hallann saman við tekjur. Það er gríðarlegur halli, yfir 300 milljarða halli á fjárlögum yfirstandandi árs. Við erum að taka alls um 400 milljarða til þess að hleypa súrefni út í atvinnulífið ef við leggjum saman sértæku aðgerðirnar og sveiflujafnarana, þ.e. hvernig tekjurnar hafa skroppið saman og bótakerfin, tilfærslurnar vaxið.

Þetta eru um 400 milljarðar sem við erum að setja sem nýtt súrefni út í hagkerfið með þeim árangri sem tölurnar sýna. Það er því mikið yfirskot þegar fólk kemur hér og segir að ríkisstjórnin sýni ekki vilja í verki til að ganga langt. Þvert á móti, við erum að setja alger met í því. Það er ekki annað ábyrgt en að sýna fram á að þrátt fyrir þennan methalla sé leið út úr stöðunni. Það er ábyrga leiðin, að við getum fyrir árið 2025 fundið að nýju frumjöfnuð í ríkisfjármálunum og stöðvað þannig frekari skuldasöfnun. Við erum að tala um árið 2025 í því samhengi. Allar ábendingar sem við fáum um efnahagsstefnuna, m.a. úr Seðlabankanum, eru á sama veg og þær fjalla um að okkur beri að draga úr þessum víðtæku stuðningsaðgerðum eftir að áhrifum af kórónuveirufaraldrinum lýkur. Við höfum væntingar um að það komist á ný í þokkalega eðlilegt ástand þegar bólusetningu lýkur og himnarnir opnast og ferðamenn fara aftur á hreyfingu. Þess vegna erum við smám saman yfir þetta fimm ára tímabil að draga úr slíkum beinum stuðningsaðgerðum og setja markið á jöfnuð (Forseti hringir.) og stöðvun skuldasöfnunar. Þá kemur Seðlabankinn inn í myndina til að hleypa súrefni inn eins og seðlabankastjóri hefur rakið, m.a. í þessari viku. (Forseti hringir.)

Virðulegi forseti. Ég vil lýsa mikilli ánægju minni með hvernig til hefur tekist í þessari umræðu við mjög snúnar aðstæður og við bjóðum fram alla mögulega aðstoð til fjárlaganefndar sem fer nú yfir málið.