151. löggjafarþing — 75. fundur,  26. mars 2021.

störf þingsins.

[10:45]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Herra forseti. Gosið í Geldingadölum sem stendur nú yfir hefur eina ferðina enn sýnt okkur hvers þetta ótrúlega land er megnugt og hvers náttúran er megnug. Eðlilega er áhugi almennings á gosinu mjög mikill, svo mikill að menn hafa reifað athugasemdir um það að kannski sé ekki verið að gæta nægilega vel að sóttvörnum í tengslum við skoðun á gosinu. Það er eitthvað sem við þurfum að huga að, sérstaklega núna þegar fjórða bylgjan gæti verið að fara af stað í þessum faraldri. Það eru til leiðir til að taka á þessu. Til að mynda væri hægt að tempra aðganginn inn á svæðið en þá þurfum við stuðning frá þeim aðilum sem þarna eru á svæðinu að vinna í sjálfboðavinnu, þ.e. björgunarsveitunum.

Björgunarsveitirnar hafa líka sýnt okkur í þessum náttúruhamförum hvað þær eru gríðarlega mikilvægur þáttur í samfélagi okkar, hvað þær skipta miklu máli á erfiðum stundum og tímum þegar óvæntir atburðir gerast. Þá eru hundruð ef ekki þúsundir manna tilbúin að fara á vettvang til að tryggja öryggi okkar hinna í sjálfboðavinnu. Það er mikil þekking til í björgunarsveitunum á björgun og leit og atriðum sem snúa að því. Því hef ég m.a. lagt fram á þinginu mál um alþjóðlegan björgunarskóla sem ég hyggst leggja fram að nýju. Við þurfum á þessum aðilum að halda og ég held að björgunarsveitirnar væru best til þess fallnar að stýra slíku verkefni.

Náttúra Íslands er stórfengleg. Það er mikilvægt að við fáum tækifæri til að njóta hennar en við þurfum líka að virða sóttvarnir og við eigum að hjálpa þeim frábæru einstaklingum sem eru í björgunarsveitunum til að hjálpa okkur að njóta.