markaðir fyrir fjármálagerninga.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um markaði fyrir fjármálagerninga. Frumvarpið er á þskj. 1081 og er mál nr. 624. Frumvarpið er umfangsmikið, eða um 160 bls., og í því eru lagðar til talsverðar breytingar á starfsumhverfi verðbréfafyrirtækja hér á landi. Frumvarpið felur í sér innleiðingu á ákvæðum tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2014/65/ESB um markaði fyrir fjármálagerninga og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 600/2014 um sama efni.
Alþjóðlega fjármálakreppan árið 2008 leiddi í ljós bresti í virkni og gagnsæi fjármálamarkaða. Samdóma álit alþjóðastofnana er að veikleikar í stjórnarháttum fjölda fjármálafyrirtækja hafi verið einn af þeim þáttum sem hrundu fjármálakreppunni af stað. Óhófleg og óvarleg áhættutaka getur leitt til falls einstakra fjármálafyrirtækja og aukinnar kerfisáhættu í einstaka ríkjum og á alþjóðavísu. Þessi atriði leiddu til þess að talin var þörf á traustari lagaumgjörð um fjármálagerninga til að tryggja gagnsæi, efla fjárfestavernd, auka traust fjárfesta, fylla í gloppur í regluverki og tryggja að eftirlitsstofnanir hefðu nægar valdheimildir til að sinna verkefnum sínum. Í því skyni samþykkti Evrópusambandið nýtt regluverk um markaði fyrir fjármálagerninga sem ætlað er að leysa af hólmi eldra regluverk á sama sviði.
Virðulegur forseti. Í samræmi við nýlega þróun í lagasetningu á fjármálamarkaði hér á landi er lagt til að sett verði ný heildarlög um markaði fyrir fjármálagerninga sem leiða ákvæði tilskipunarinnar og reglugerðarinnar í íslenskan rétt og að gildandi ákvæði um sama efni í lögum um verðbréfaviðskipti verði felld brott. Jafnframt er lagt til að lög um kauphallir, nr. 110/2007, falli brott og að þó nokkrar breytingar verði gerðar á lögum um verðbréfaviðskipti, nr. 108/2007, og lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002. Auk þess eru lagðar til minniháttar afleiddar breytingar á tuttugu öðrum lögum, aðallega hvað varðar vísanir á milli laga og hugtakanotkun.
Frumvarpið fjallar nánar tiltekið um þessi efnisatriði:
1. Þær kröfur sem gerðar eru til verðbréfafyrirtækja.
2. Þær kröfur sem gerðar eru til þeirra sem reka markaði og markaðanna sjálfra.
3. Þær kröfur sem gerðar eru til þeirra sem veita gagnaskýrsluþjónustu.
4. Þær reglur sem gilda um skuldajöfnuð og tryggingarétt í tengslum við afleiður.
Á grundvelli móðurgerðanna, sem fjallað er um í frumvarpinu, hefur ESB gefið út um 60 breytingagerðir og afleiddar gerðir sem m.a. útfæra nánar ýmis ákvæði móðurgerðanna sem lagt er til að ýmist verði teknar upp í íslenskan rétt með frumvarpinu eða stjórnvaldsfyrirmælum.
Frumvarpið felur í sér þó nokkrar breytingar frá gildandi rétti. Það hefur til að mynda víðtækara gildissvið en gildandi lög, tekur mið af tækninýjungum og er ætlað að auka gagnsæi í viðskiptum með fjármálagerninga og skerpa á fjárfestavernd. Frumvarpið mun t.d. hafa í för með sér breytingar á gildandi reglum um starfsleyfi, viðskiptahætti og skipulagskröfur til verðbréfafyrirtækja auk nýrra tegunda viðskiptavettvanga. Þá eru eftirlitsstjórnvöldum færðar valdheimildir til að hlutast til um markaðssetningu, dreifingu eða sölu tiltekinna fjármálaafurða að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Íhlutunarheimildir þeirra geta einnig náð til tiltekinnar fjármálastarfsemi eða framkvæmdar á fjármálamarkaði. Að öðru leyti vísa ég til umfjöllunar í 4. kafla greinargerðar frumvarpsins um breytingar frá gildandi rétti.
Virðulegur forseti. Þær breytingartillögur frumvarpsins sem markaðsaðilar hafa mestar áhyggjur af, samkvæmt því sem fram hefur komið á samráðsgáttinni, eru takmarkanir sem hafa áhrif á þær tekjur sem hægt er að hafa af því að veita eða miðla sjálfstæðum rannsóknum eða ráðgjöf. Sumir telja að þær hafi veruleg áhrif á viðskiptamódel verðbréfafyrirtækja. Breytingar á öðrum kröfum til markaðsaðila eru ekki taldar hafa í för með sér svo aukinn kostnað fyrir þá sem hafa milligöngu um veitingu fjárfestingarþjónustu að það skerði samkeppni. Samræming við evrópskar reglur á þessu sviði er aftur á móti líkleg til þess að ýta undir samkeppni.
Tilskipunin um markaði fyrir fjármálagerninga felur í sér lágmarkskröfur sem aðildarríki verða að taka upp í landsrétt. Í 5. kafla greinargerðar frumvarpsins er fjallað um hvernig það svigrúm sem er innbyggt í tilskipunina er nýtt, í hvaða tilvikum gengið er lengra en lágmarkskröfur hennar gera ráð fyrir og í hvaða tilvikum lagt er til að núgildandi séríslensk ákvæði verði felld brott.
Rekstraráætlun Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands fyrir árið 2021 gerir ráð fyrir fjölgun stöðugilda vegna verkefna á sviði verðbréfamarkaðar. Þannig hefur verið tekið tillit til þeirra auknu verkefna sem Seðlabankanum verða falin með frumvarpinu, bæði í kostnaði og útreikningi á eftirlitsgjaldi. Nettóáhrif á ríkissjóð verða því engin. Ekki er gert ráð fyrir að lagabreytingin hafi teljandi áhrif á eftirlitshlutverk Seðlabanka Íslands sem hefur í dag eftirlit með markaðsaðilum hér á landi og ekki er gert ráð fyrir neinum áhrifum á ríkissjóð.
Þá er að lokum rétt að geta þess að í frumvarpinu er miðað við að frumvarp til nýrra laga um aðgerðir gegn markaðssvikum öðlist gildi á sama tíma. Síðargreinda frumvarpið er í þinglegri meðferð á þskj. 992, 584. mál. Því er ætlað að innleiða í íslenskan rétt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um markaðssvik. Málin eru tengd, t.d. hvað varðar gildissvið og hugtakanotkun, og það skýrir hvers vegna lagt er til að þau öðlist gildi á sama tíma. Gert er ráð fyrir gildistaka laganna verði 1. maí 2021 — við skulum sjá hvernig þinglega meðferðin gengur, hvort það er raunhæft.
Virðulegi forseti. Ég legg til að frumvarpi þessu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar að aflokinni þessari umræðu og svo til 2. umr. hér í þinginu.