markaðir fyrir fjármálagerninga.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra framsöguna. Það er rétt sem hæstv. ráðherra segir í ræðu sinni að þetta er mjög viðamikið frumvarp. Ég held að það sé ljóst að það verða örugglega einhverjir agnúar á þessu í framkvæmd vegna þess hversu umfangsmikið þetta er, en ég fagna því að þetta sé komið fram. Það er hins vegar spurning sem ég vildi varpa fram til hæstv. ráðherra, þ.e. hvort hér hafi verið full samræming við Evrópusambandslöggjöfina hvað þetta varðar. Ef ég skil þetta rétt er hér verið að innleiða að fullu MiFID2, sem er að sjálfsögðu mikilvægt.
En ég velti því líka fyrir mér sem fram kemur á bls. 80 í frumvarpinu, en þar er sagt að lögin eigi að taka gildi 1. maí 2021. Kemur til greina, hæstv. ráðherra, að seinka gildistökunni og gefa þá fjármálamarkaðnum tækifæri til að bregðast við því? Það er satt best að segja afar stuttur tími til að bregðast við þessu umfangsmikla frumvarpi. Það er sem sagt tvennt sem ég vil spyrja um, annars vegar hvort hér sé gætt fullrar samræmingar við reglur Evrópusambandsins, og hins vegar varðandi gildistökutímann, hvort hann sé ekki allt of knappur.