151. löggjafarþing — 75. fundur,  26. mars 2021.

markaðir fyrir fjármálagerninga.

624. mál
[14:04]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Aðeins varðandi gildistökuna þá vék ég stuttlega að því í framsögu minni að það kynni að vera of knappur tími. En það vill nú stundum vinnast þannig að mál eru samin og fara svo í samráðsgátt og svo er brugðist við því og menn láta gildistökuákvæðið standa þegar málið kemur inn í þingið þó að það hafi verið samið nokkru fyrr. En að sjálfsögðu verður þingið að leggja mat á hvort það sé raunhæft, m.a. með tilliti til málsmeðferðartíma í þinginu.

Mig langar síðan að vekja athygli á 5. kafla þessa frumvarps sem er í sérprentun á blaðsíðu 101. Þar er komið aðeins inn á þetta svigrúm við upptöku í landsrétt, bæði er þar stuttlega fjallað um málið almennt hvað snertir lágmarkskröfurnar og þar er umfjöllun um hvernig svigrúmið sem innbyggt er í gerðina er nýtt og í hvaða tilvikum gengið lengra en lágmarkskröfur gera ráð fyrir. Reyndar held ég að það mætti oft gera betur og nákvæmar í frumvarpssmíð, en hérna hefur það verið brotið niður á blaðsíðum 101 og 102. Ég vona að það sé nægjanlegt viðbragð við þeirri spurningu sem borin var upp um þetta.