markaðir fyrir fjármálagerninga.
Virðulegi forseti. Ég er ekki alveg viss um nákvæmlega í hvað verið er að vísa í umsögn Arion banka enda, eins og segir í samráðskafla frumvarpsins, er umsögn Arion banka nokkuð almennt orðuð. En nú hefur töluvert mikið verið fjallað um dóma sem fallið hafa á undanförnum áratug vegna ýmissa mála sem eiga rætur sínar í fjármálahruninu. Ég skal ekki útiloka að hægt sé að draga þann lærdóm af lagatúlkun eða dómaframkvæmd sem kalli á viðbrögð. Það sem hvað helst hefur verið rætt um að undanförnu, og ég veit ekkert hvort á einhverja samleið með þeim sjónarmiðum sem Arion banki fleytir hér inn í þetta mál, er málsmeðferðartíminn. Málsmeðferðartími getur alveg haft áhrif í samhengi við hæfileg viðurlög. Ég nefni málsmeðferðartímann sérstaklega vegna þess að það er bagalegt að við sjáum síðustu dómanna vegna hrunmálanna, sem fengu það samheiti, falla núna 13 árum eftir að þeir atburðir gerðust. Það er auðvitað ekki ásættanlegt í málsmeðferðartíma. Það er allt of hátt hlutfall af starfsævi fólks að bíða niðurstöðu úr málum í svo langan tíma.