stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda. Frumvarpið miðar að því að auka skilvirkni í opinberri þjónustu og einfalda samskipti hins opinbera við einstaklinga. Með gríðarlegri þróun í fjarskipta- og upplýsingatækni hefur einstaklingum verið gert kleift að sækja sér upplýsingar og þjónustu hvar og hvenær sem er. Tilkoma og útbreidd notkun rafrænna skilríkja veldur því að fólk þarf í sífellt minna mæli að sinna erindum í eigin persónu hjá stofnunum og fyrirtækjum. Þessa þróun höfum við nýtt okkur til að stórbæta opinbera þjónustu.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 30. nóvember 2017 segir að byggja skuli upp stafræna þjónustugátt þar sem landsmenn geti á einum stað nálgast þjónustu hins opinbera og sinnt þeim erindum sem beinast að stjórnvöldum. Með gáttinni ísland.is höfum við lagt góðan grunn að slíkri þjónustugátt. Á fundi ríkisstjórnar í maí 2018 var staðfest sú stefna að stafræn þjónusta skyldi verða meginleið samskipta á milli hins opinbera, almennings og fyrirtækja. Þá segir í þingsályktun 22/150, frá 29. janúar 2020, að fjármála- og efnahagsráðherra skuli stórefla vinnu er varðar gæði rafrænnar þjónustu hins opinbera gagnvart almenningi.
Miðlæga þjónustugáttin á ísland.is er grundvöllur þess að ná markmiði stefnuyfirlýsingar um að opinber þjónusta verði að mestu leyti stafræn. Mikilvægt skref í þeirri vegferð er að tryggja stofnunum fullnægjandi lagaheimild til að geta sent einstaklingum og lögaðilum gögn rafrænt, þannig að birtingin hafi sömu réttaráhrif og þegar gögn eru send með öðrum hætti. Tugir stofnana nota nú þegar pósthólf á ísland.is til að senda gögn til einstaklinga og lögaðila, án þess þó að sett hafi verið sérstök lög eða formlegar reglur um þjónustugáttina eða gögnin sem þangað berast. Með frumvarpinu er stefnt að því að eyða öllum vafa um réttaráhrif birtingar í pósthólfinu.
Frumvarp þetta er í samræmi við framangreinda stefnuyfirlýsingu og heimilar stjórnvöldum að senda gögn til einstaklinga og lögaðila með stafrænum hætti, í meira mæli en nú er gert. Með því að setja sérstök lög um pósthólfið er tryggt að réttaráhrif þess að gera gögn aðgengileg í pósthólfinu verði þau sömu og þegar gögn berast með bréfpósti eða með öðrum hætti. Þegar gögn hafa verið gerð aðgengileg í pósthólfi viðtakanda teljast þau þar með birt viðtakanda sjálfum. Frumvarpið tekur til allra gagna, þar með talið tilkynninga, ákvarðana og ákvæða sem viðtakandi er bundinn af, með tilliti til kærufrests og efni gagnanna að öðru leyti. Þegar gögn hafa verið gerð aðgengileg í pósthólfi viðtakanda á ísland.is teljast þau þar með birt viðtakanda sjálfum.
Sú framkvæmd að skylt verði að senda gögn í pósthólf einstaklinga og lögaðila á ísland.is mun hafa í för með sér mikla einföldun fyrir viðtakendur. Þannig geta einstaklingar og lögaðilar verið fullvissir um að öll gögn frá opinberum aðilum megi finna í pósthólfinu. Af því leiðir að ef þeir sem eiga engin útistandandi gögn í pósthólfi sínu á ísland.is mega gera ráð fyrir því að eiga engin útistandandi gögn frá hinu opinbera yfir höfuð, þ.e. tómt pósthólf þar segir að engin erindi séu útistandandi.
Við núverandi framkvæmd fær viðtakandi sendan póst á lögheimili sitt, en þannig hefur sendandi enga vitneskju um hvort viðtakandi les póstinn í raun, hvort sem um er að ræða ábyrgðarbréf eða ekki. Það sama á við þegar gögn eru birt með stefnuvotti með tilheyrandi útgefnu birtingarvottorði. Á vottorðinu er staðfest að viðkomandi einstaklingur hafi tekið við umslagi en vottorðið ber ekki með sér hvort viðtakandi hafi kynnt sér efni gagnanna sem eru í umslaginu. Þá þykja aðrar birtingaraðferðir, svo sem þegar birt er fyrir þeim „sem hittist fyrir“ á lögheimili viðkomandi, eins og það heitir á lagamáli, síður öruggar hvað þetta varðar.
Með því að birta gögnin í stafrænu pósthólfi má halda því fram að líkur stóraukist á að þeir viðtakendur sem í hlut eiga hafi beinan aðgang að gögnunum, að gögnin berist viðtakanda í reynd og hann eigi þannig kost á því að kynna sér efni þeirra. En um þetta má svo sem flytja langt mál. Við göngum ekki svo langt í þessu frumvarpi að gera kröfu um að viðtakandi hafi í reynd opnað gögnin og staðfest móttöku þeirra til að gagnið teljist birt, enda fælu slíkar ríkari skyldur í sér frávik frá núverandi birtingaraðferðum. Þannig er hvorki lögð meiri né minni ábyrgð á herðar viðtakanda gagnanna en gert er með gildandi réttarreglum.
Lagt er til að bæði einstaklingar og fyrirtæki sem hafa fengið útgefna kennitölu lögum samkvæmt eigi hver sitt pósthólf sem þeir einir hafa að jafnaði aðgang að. Öllum verður gefinn kostur á aðgengi að pósthólfi. Þeim sem þurfa verður veitt aðstoð eða þjónusta við hæfi, en slík þörf getur verið mjög einstaklingsbundin. Kjósi einstaklingur að fá gögn með öðrum hætti er gert ráð fyrir að birtingaraðila sé heimilt að innheimta gjald vegna þeirrar þjónustu. Slíkt gjald verður þó ekki innheimt fyrr en lög þessi koma að fullu til framkvæmdar hinn 1. janúar 2025. Það skiptir máli. Við erum sem sagt ekki að boða að við samþykkt þessara laga taki þessi nýi samskiptamáti alfarið yfir og teljist hin lögboðna birtingaraðferð heldur verði það fyrst komið að fullu til framkvæmda árið 2025. Með því er gefinn mátulegur aðlögunartími og alveg ljóst öllum að við getum ekki skipt úr því kerfi sem fólk hefur mátt venjast til langs tíma, til áratuga, og fært okkur yfir í stafrænt pósthólf bara svona yfir nótt á þessu ári. Það getur aldrei orðið þannig.
Fyrirkomulagið mun ótvírætt leiða til verulegs sparnaðar fyrir ríkissjóð til lengri tíma. Þá mun frumvarpið jafnframt hafa jákvæð áhrif á umferð og kolefnislosun, bara vegna þess að fólk þarf ekki að vera að sendast í erindagjörðum með tilkynningar út um allan bæ, og það sparar almenningi verulegan tíma. Þrátt fyrir að gera megi ráð fyrir auknum kostnaði og vinnu hjá stofnunum í upphafi, sérstaklega á innleiðingartímabili, er ljóst að til lengri tíma verður töluverð hagræðing fyrir samfélagið allt, þar með talið stofnanirnar sem í hlut eiga. Mikill samfélagslegur ávinningur fylgir lagabreytingunni vegna hagræðis fyrir einstaklinga og það gildir sömuleiðis fyrir hið opinbera.
Málið er ekki síst stórt skref í mikilvægri vegferð ríkisstjórnarinnar í að stórbæta opinbera þjónustu og stuðla að því að við verðum innan tíðar sannkallað stafrænt Ísland.
Virðulegi forseti. Ég legg til að þegar við höfum lokið umræðu um frumvarpið verði því vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar þingsins og 2. umr.