stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.
Forseti. Ég ætla að koma örstutt hér inn í umræðu um þetta ágæta mál sem ég er sannfærður um að verði til góðs, ekki síst til að gera grein fyrir fyrirvara sem ég og tveir aðrir hv. þingmenn Vinstri grænna gerðum þó við það við afgreiðslu þingflokks Vinstri grænna. Við teljum mikilvægt að öruggt verði að rafræn skilríki sem hið opinbera gefi út séu forsenda þess að hægt sé að klára þetta mál. Í því samhengi minnum við á mál sem við höfum hér flutt ár eftir ár, og ég hef verið fyrsti flutningsmaður að, um að ríkið gefi út örugg opinber rafræn skilríki. Ég minni líka á heimild til að kaupa Auðkenni. Það hefur verið í fjárlögum, að ég hygg, í eitt eða tvö ár, og svo vinnu sem ég hef ítrekað farið yfir þegar ég er að mæla fyrir þingsályktunartillögum um örugg opinber rafræn skilríki sem hefur átt sér stað á Norðurlöndunum þar sem við höfum, í gegnum Norðurlöndin, verið í ákveðnu samstarfi.
Það er með öðrum orðum, forseti, nauðsynlegt, áður en við förum út í svona þjóðþrifamál sem þetta þó er, að þegnum og borgurum þessa lands sé gert kleift að eignast örugg opinber rafræn skilríki sem hið opinbera gefur út eins og önnur skilríki sem fólk er neytt til að nota, ef þannig má orða það. Ef hið opinbera hefur eitthvað þannig að nota verði ákveðna vöru þá á hið opinbera einfaldlega að gefa hana út. Ég vildi gera grein fyrir þessum fyrirvara, hvetja hæstv. ráðherra til dáða þegar kemur að því annaðhvort að nýta fjárheimildina til að kaupa Auðkenni eða fá okkur öll til að koma á fót öruggum opinberum rafrænum skilríkjum.