151. löggjafarþing — 75. fundur,  26. mars 2021.

stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.

625. mál
[14:26]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma og upplýsa um þetta. Mér finnst mjög merkilegt og mikilvægt að við fáum þetta fram. Þetta eru góð tíðindi. Þingsályktunartillaga um starfshóp um útgáfu öruggra opinberra skilríkja er mér hugleikin þar sem þetta er fyrsta málið sem ég lagði fram á Alþingi og er búinn að tala fyrir því síðan ég var kjörinn hingað inn. Ég hef talað fyrir því og hefði haldið að það hefði verið gott fyrir fjármálaráðherra í þeirri stöðu sem hann er í núna til að semja um verð. Ef Alþingi hefði borið gæfu til að afgreiða þessa tillögu hefðum við haft það lóð á vogarskálina hinum megin að segja: Allt í lagi, ef við getum ekki náð saman um verð þá förum við bara akkúrat hina leiðina og búum til okkar eigin skilríki. Það myndi gera samningsstöðu ríkisins betri að vera komið með svona tillögu. Þess vegna er ég sérstaklega ánægður með að heyra hæstv. ráðherra lýsa því yfir að það væri þá bara alltaf möguleiki, að sjálfsögðu, að því gefnu að samningar sigli í strand. Ég held að sú leið að festa kaup á hlutafé í umræddu fyrirtæki sé skynsamleg af því að hún er bara svo miklu einfaldari. Það þarf ekki alltaf að finna upp hjólið, það er hægt að ganga inn í það sem fyrir er.

Mig langar, forseti, að spyrja hæstv. ráðherra þar sem hann kom inn á þetta, færði okkur þessi fínu tíðindi: Er hægt að segja eitthvað til um tímasetningu varðandi þetta? Getum við séð að þetta sé að verða að veruleika? Er hæstv. ráðherra sammála mér og fleirum úr þingflokki Vinstri grænna um að það sé ákveðin forsenda fyrir því að umrætt mál, sem liggur hér undir, verði að veruleika?