151. löggjafarþing — 76. fundur,  12. apr. 2021.

breytt skipan þingviku.

[15:02]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Ég býð hv. alþingismenn og starfsfólk Alþingis velkomið til starfa nú við upphaf vorþings að afloknu páskahléi á fundum Alþingis með tilheyrandi páskahreti og eldgosum og fleiru. Á fundi forseta með formönnum þingflokka um helgina og fyrr í dag var gengið frá samkomulagi um skipulag þingvikunnar næstu vikurnar a.m.k., sem gengur út á það að þingfundir samkvæmt starfsáætlun muni hefjast kl. 13 alla daga. Nefndafundir verða fyrir hádegi á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum og sama gildir um þingflokksfundi, þeir eru fyrir hádegi á mánudögum og miðvikudögum. Þetta er í raun framhald af fyrra samkomulagi frá 29. janúar sl., sem var í gildi í tilraunaskyni fram að páskahléi og reyndist vel en er nú aðlagað að starfsáætlun vorsins. Ég vil færa formönnum þingflokka sérstakar þakkir fyrir góða samvinnu um þetta.