aðgerðir gegn ójöfnuði.
Herra forseti. Ráðherrar neita að horfast í augu við veruleikann þegar þeir eru sífellt að vitna í meðaltöl um auknar ráðstöfunartekjur fólks til þess að réttlæta stöðuna. Það gefur skakka mynd af vanda dagsins þar sem 25.000 einstaklingar glíma við atvinnuleysi. Að stærstum hluta er þetta ungt fólk og fólk á lágum tekjum. Þessi vísvitandi bjögun á veruleikanum er síðan endurtekin í fjármálaáætlun. Fjármálaráð bendir hins vegar í umsögn sinni á hættuna á því að lesa of mikið úr meðaltölum, með leyfi forseta:
„Sumar afleiðingar samdráttarins koma niður á flestum heimilum, svo sem hækkandi almennt verðlag, en atvinnuleysi kemur einungis niður á þeim sem fyrir því verða. Í framlagðri fjármálaáætlun er ítarleg umfjöllun um stöðu heimilanna þar sem byggt er á meðaltölum. Meðaltöl segja þó lítið þegar frávikin eru stór.“
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn vekur einnig athygli á eðli þessarar kreppu og hvetur ríki til að koma á sérstökum samstöðugreiðslum þar sem vel stæð fyrirtæki og vellauðugir einstaklingar, sem beinlínis hagnast á kórónukreppunni, leggi tímabundið meira af mörkum til að létta undir með þeim sem verða fyrir mestu áhrifunum af kórónukreppunni og til að draga úr vaxandi ójöfnuði. Einhvers konar samstöðugreiðslur væru ekki einungis til þess fallnar að ýta undir samábyrgð á erfiðum tímum heldur einnig góð efnahagsstjórn. Beinn stuðningur ríkisfjármála er einna minnstur á Íslandi í alþjóðlegum samanburði. Við höfum því bolmagn til að gera betur, en við höfum lítinn tíma. Aðgerð sem þessi ætti að falla vel í kramið hjá flokkum sem vilja berjast gegn ójöfnuði og því spyr ég hæstv. forsætisráðherra hvort henni lítist vel á þessar tillögur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Og ef svo er hvort hún áformi að ráðast í einhverjar slíkar aðgerðir eða hvort hún telji það kannski pólitískt ómögulegt í núverandi ríkisstjórn.