151. löggjafarþing — 76. fundur,  12. apr. 2021.

aðgerðir gegn ójöfnuði.

[15:08]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að setja hér nokkur mál á dagskrá; í fyrsta lagi málefni atvinnuleitenda; í öðru lagi aðgerðir stjórnvalda og mælingar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á þeim og í þriðja lagi hugmyndir aðalhagfræðings Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Ef ég byrja aðeins á stöðu mála í atvinnuleysi þá geri ég athugasemd við það þegar talað er um meðaltöl sem vísvitandi bjögun á raunveruleikanum. Auðvitað er það ekki svo. Auðvitað er enginn að gera lítið úr því gríðarlega vandamáli sem langtímaatvinnuleysi er. Þess vegna hefur ríkisstjórnin einmitt ráðist í aðgerðir á því sviði. Það er áhugavert að skoða núna hvaða nýju störf eru í boði því að 1.583 ný störf voru auglýst í vinnumiðlun Vinnumálastofnunar í mars og 88% þeirra eru komin til vegna aðgerða stjórnvalda, þess átaks sem við höfum ráðist í til þess að fækka þeim á atvinnuleysisskrá sem hafa verið atvinnulausir lengur en 12 mánuði og koma þeim aftur út á vinnumarkaðinn. Þetta segir okkur að aðgerðir stjórnvalda skipta verulegu máli.

Ég vil líka koma því á framfæri hér, vegna frétta af mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á aðgerðum íslenskra stjórnvalda, að til að byrja með eru útgjöld ríkisins til aðgerða ekki raunhæfur mælikvarði á eitt né neitt nema þau séu sett í samhengi við árangurinn af þeim aðgerðum. En við höfum gert athugasemd við þetta mat Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og þau hafa til að mynda ekki tekið með í reikninginn fjárfestingarátak, framlög til námstækifæra, viðbótarhækkun atvinnuleysisbóta, styrki til rannsókna og þróunar o.s.frv., þannig að þessi mælikvarði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins virðist byggður á mjög þröngri afmörkun sem er reyndar því miður allt of algengt þegar um er að ræða til að mynda eðli fjárfestinga og við áttum ágætissamtal um einmitt í umræðum um fjármálaáætlun.

Hv. þingmaður spyr síðan um hugmyndir um að skattleggja þá sem hafa í raun hagnast á kreppunni og það er eitthvað sem ég held að þurfi að skoða(Forseti hringir.) til lengri tíma, þ.e. að greina það í fyrsta lagi hverjir hafa hagnast á þessari stöðu. Síðan finnst mér að sjálfsögðu eðlilegt að farið verði yfir þá tekjuöflunarmöguleika sem þar eru fyrir hendi.