151. löggjafarþing — 76. fundur,  12. apr. 2021.

aðgerðir gegn ójöfnuði.

[15:10]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Fjármálaráð bendir beinlínis á að við núverandi aðstæður, þar sem byrðarnar lenda mjög ójafnt á fólki í þessari skrýtnu kreppu, segja meðaltöl lítið. Það er ekki óeðlilegt að ég kalli það bjögun á veruleikanum þegar hæstv. fjármálaráðherra kemur trekk í trekk í viðtöl og talar um að ráðstöfunartekjur heimila hafi hækkað eins og það sé eitthvað sem lýsi almennt stöðunni í samfélaginu. Það gerir það bara því miður ekki. Það eru of margir sem hafa það skítt.

Mér þykir áhugavert að heyra að búið sé að senda athugasemd til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og ég bíð spenntur eftir svörum. En það er ýmislegt sem hæstv. forsætisráðherra tiltók, eins og fjárfestingarátakið sem ekki hefur einu sinni gengið eftir í sama mæli og það átti að gera og borið við að það tæki lengri tíma að koma framkvæmdum af stað þegar vitað var að hægt var að fara beint og styrkja sveitarfélögin til að ráðast í verkefni sem voru tilbúin.