aðgerðir gegn ójöfnuði.
Herra forseti. Já, það voru sendar athugasemdir vegna þess að það skiptir máli að svona tölur séu samanburðarhæfar milli landa. En eins og ég kom að hér áðan þá eru útgjöld til aðgerða bara einn mælikvarði. Við þurfum líka að horfa á árangur. Í Bretlandi hefur u.þ.b. 15% af vergri landsframleiðslu verið sett í aðgerðir til að bregðast við Covid. Samdrátturinn þar er tæp 10%. Fyrir utan það að ekki eru taldir með þeir liðir sem ég taldi upp áðan þá erum við líka með mjög öfluga sjálfvirka sveiflujafnara sem hafa svo sannarlega virkað sem skyldi, þannig að þegar við skoðum aðgerðir stjórnvalda nema mótvægisaðgerðir samtals um 190 milljörðum kr. á árunum 2020–2021. Áhrif sjálfvirku sveiflujafnaranna eru um 205 milljarðar kr. á tímabilinu. Það er mun umfangsmeira en gert er ráð fyrir í þessum samanburði. Stóra málið er hins vegar hver árangurinn er af þessu og þar sjáum við að samdrátturinn er minni en spáð var vegna aðgerða stjórnvalda.