sóttvarnir og bóluefni.
Virðulegur forseti. Samkvæmt nýrri reglugerð hæstv. heilbrigðisráðherra borgar nú ríkið hótel- og fæðiskostnað allra sem þiggja boð um að fara í sóttvarnahús í fimm daga einangrun. Hvers vegna samþykkir ríkisstjórnin að borga fyrir erlenda ferðamenn sem koma t.d. til landsins að skoða eldgos á Reykjanesi? Telur hæstv. heilbrigðisráðherra ekki lagagrundvöll til að láta ferðamenn borga sjálfa fyrir þessa fimm daga sóttkví á hóteli eins og nágrannaþjóðir okkar gera og það í um helmingi fleiri daga en við?
Og enn og aftur: Nú hefur komið í ljós vandamál vegna aukaverkana af bóluefni AstraZeneca og Janssen sem valda blóðtappa, og þá sérstaklega hjá konum. Er ekki kominn tími til að leyfa þeim sem eru með undirliggjandi sjúkdóma að velja sjálf bóluefni eða á að halda áfram þeirri furðulegu þrjósku að þvinga jafnvel og neyða fólk til að fá bóluefni sem það vill ekki?
Þá er spurning um hvernig ákveðið var að sekta vegna brota gegn reglum heilbrigðisráðherra, í sóttkví, einangrun og sýnatöku vegna Covid-19. Þegar brotið er gegn skyldu til að fara í sóttkví, samkvæmt 3. gr. og 1. mgr. 4. gr., ákvarðast sektin af alvarleika brots og getur verið frá 50.000 upp í 250.000 kr. Þessi upphæð er viku- til mánaðarútborgun lífeyrislauna almannatryggingalaunþega og fer langt upp í mánaðarútborgun launa hjá láglaunafólki. En þetta eru bara laun fyrir einn dag eða mesta lagi viku hjá þeim sem eru á hæstu launum. Ef sekt á fæla fólk frá því að brjóta gegn reglugerð, hvers vegna í ósköpunum er hún þá ekki tekjutengd? Eiga ekki allir að vera jafnir fyrir lögum og fjárhagsleg refsing að bitna jafnt á öllum? Þarna er hreinlega verið að segja við fólk: Ef þú hefur nógu miklar tekjur getur þú framið brot og borgað sektina. En hinir hafa ekki þann möguleika. Þeir geta misst mánaðarlaun sín meðan þeir betur settu missa kannski einn dag eða viku.