sóttvarnir og bóluefni.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurningarnar. Í fyrsta lagi varðandi gjaldtöku fyrir hótelgistingu og mat í sóttkvíarhóteli var tekin ákvörðun um að falla frá þeirri gjaldtöku til að hvetja fólk frekar til að nýta þennan kost. Við teljum, af fenginni reynslu, að meiri líkur séu á því að við höldum utan um möguleikana á því að fólk brjóti sóttkví ef það er á sóttkvíarhóteli og þess vegna töldum við gjaldtöku þar toga það úrræði í ranga átt.
Hv. þingmaður spyr í öðru lagi um tilteknar aukaverkanir af bóluefni AstraZeneca og hvort þær aukaverkanir eigi að leiða til þess að við breytum um nálgun á notkun á því bóluefni í átt að því að fólk fái að velja sér bóluefni. Við höfum nú rætt þetta áður, ég og hv. þingmaður. Það eru náttúrlega ákveðnar frábendingar, það eru tilteknir hópar sem ekki er talið ráðlegt að taki AstraZeneca. Það verður enginn þvingaður eða neyddur, af því að það voru orð hv. þingmanns, til að nota eitt bóluefni frekar en annað. En hins vegar er það þannig að ef fólk kýs ekki það bóluefni sem því stendur til boða í þeirri röð sem sóttvarnalæknir ákveður lendir viðkomandi aftar í röðinni eins og gefur að skilja.
Hv. þingmaður spyr síðan um sektir og ég kem vonandi að því hér í mínu síðara svari.