sóttvarnir og bóluefni.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég verð samt að vera innilega ósammála henni í sambandi við þá sem óttast og eru með undirliggjandi sjúkdóma, sérstaklega vegna þess að við setjum ákveðin aldurstakmörk. Mér skilst að það verði 55 ára og yngri sem fái — og svo hefur líka komið fram að Janssen-bóluefninu fylgi hætta á blóðtappa. Ég spyr: Af hverju í ósköpunum á að refsa fólki með því að setja það aftast í röðina? Af hverju er ekki bara komið til móts við fólk ef það er hrætt? Svo er líka önnur spurning: Hvenær á að klára að bólustetja þá sem eru með undirliggjandi sjúkdóma? Ég veit um fólk sem er með undirliggjandi sjúkdóma og er búið að vera lokað inni. Af hverju er þetta fólk ekki komið í forgang? Af hverju er ekki í fyrsta lagi búið að leyfa þessu fólki að fá bóluefni og í öðru lagi að leyfa því að velja. Það getur ekki verið svo rosalega erfitt. Það er fullt af öðru fólki sem er tilbúið að fá bóluefni ef aðrir vilja skipta.