151. löggjafarþing — 76. fundur,  12. apr. 2021.

sóttvarnir og bóluefni.

[15:18]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Það verkefni stendur yfir einmitt núna, að fara yfir frábendingar vegna þessara bóluefna til að tryggja að ekki sé verið að bólusetja þá hópa þar sem eru meiri líkur á aukaverkunum með tilteknum efnum. Það stendur yfir.

Hv. þingmaður spyr sérstaklega um fólk með undirliggjandi sjúkdóma. Bólusetningar á þeim hópum munu hefjast í þessari viku og eru aðeins komnar af stað. Við erum búin með 70 ára og eldri. Þessi vika verður stór bólusetningarvika, þar sem a.m.k. 8.000 manns verða bólusettir á morgun og það er bara með bóluefni Pfizer, þannig að morgundagurinn verður sennilega stærsti bólusetningardagur frá upphafi.

En varðandi síðan vangaveltur hv. þingmanns um sektir og ákveðna tekjutengingu sektargreiðslna, þá er það kannski miklu stærri umræða sem varðar sektaumhverfi almennt í samfélaginu, ég nefni til að mynda sektir fyrir umferðarlagabrot.