lagagrundvöllur sóttvarnareglugerðar.
Virðulegi forseti. Fyrst varðandi síðustu spurningu hv. þingmanns, af hverju þetta var ekki hluti af þeim blöðum sem hv. velferðarnefnd fékk, þá var það minn skilningur að óskað hefði verið eftir þeim pappírum sem lágu fyrir á ríkisstjórnarfundi en minnisblað mitt var ekki þar á meðal. Það er enda ekki hlutverk dómsmálaráðuneytisins sérstaklega að kanna lagastoð fyrir reglugerðir hjá öðrum ráðherrum. En spurningar vöknuðu hjá mér eftir ríkisstjórnarfundinn um þau gögn sem komu fram og ég lét vinna þetta minnisblað til að senda hæstv. heilbrigðisráðherra sem var gert laugardaginn 3. apríl.