151. löggjafarþing — 76. fundur,  12. apr. 2021.

lagagrundvöllur sóttvarnareglugerðar.

[15:24]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég veit ekki í hvaða hrakförum dómsmálaráðherra á að hafa lent í þessu máli. Ég hafði áhyggjur af lagastoðinni og lét því vinna þetta fyrir mig. Þar sem niðurstaðan varð sú að vafi væri talinn leika á því hvort ákvæði reglugerðarinnar hefði fullnægjandi lagastoð var það sent heilbrigðisráðuneytinu og fékk þar góðar viðtökur. Þar var þakkað fyrir þetta minnisblað og það var skoðað strax þann laugardag. Seinna sama dag kom fram að reyna myndi á málið fyrir dómstólum sem varð raunin.