151. löggjafarþing — 76. fundur,  12. apr. 2021.

aðgerðir ríkisstjórnarinnar og atvinnuleysi.

[15:27]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina sem er skyld þeirri sem hv. þm. Logi Einarsson bar fram hér áðan. Ég vil rifja það upp að í fyrsta lagi eru sjálfvirkir sveiflujafnarar ekki taldir með í þessum samanburði. Því er í raun kannski tilgangslítið að bera saman Ísland og Bandaríkin, svo að dæmi sé tekið, þar sem gripið hefur verið til mjög stórra aðgerða, svo að nemur fjórðungi af landsframleiðslu, en allt annað fyrirkomulag er á velferðarkerfinu þannig að sá samanburður skilar litlu. Ef við horfum til annarra Evrópuríkja má sjá að þetta er töluvert mismunandi. Eðli máls samkvæmt, eins og hv. þingmaður bendir réttilega á, verður höggið þungt hér vegna þess hve ferðaþjónustan er umfangsmikil í hagkerfinu. Þá segi ég: Horfum annars vegar á þennan mælikvarða — og það er rétt að við höfum gert athugasemdir við þessa mælingu AGS því að ekki eru allar aðgerðir okkar teknar með, ekki fjárfestingarátakið, námstækifæri, hækkun atvinnuleysisbóta, styrkir til nýsköpunar, styrkir til rannsókna og þróunar og væntanlega ekki skapandi greinar. Ef við tökum þetta allt til ætti Ísland kannski frekar að mælast í 7,5% af vergri landsframleiðslu í aðgerðum þar sem umfang beinna aðgerða á tímabili fjármálaáætlunar nemur 9,3% af vergri landsframleiðslu árið 2020. Þannig að: Já, við gerum athugasemdir við þetta.

En þetta er auðvitað bara afmarkaður mælikvarði. Við þurfum að horfa á það hver niðurstaðan er. Hver er niðurstaðan af því sem gerst hefur á Íslandi? Jú, þrátt fyrir að stærsta útflutningsgreinin lamist dregst innlend eftirspurn einungis saman um 1,9% í fyrra. Samdráttur í landsframleiðslu, eins og ég hef bent á, er mun minni en spáð var í fyrstu og því er í raun og veru illa hægt að bera saman þessa mælikvarða án þess að hafa þá báða undir, þ.e. hver var raunverulegur samdráttur og hver eru þá raunveruleg útgjöld til aðgerða.

Hvað varðar atvinnuleysið þá kem ég nánar að því hér á eftir. En þar vil ég þó segja, áður en ég kem að því í mínu seinna svari, að þar er aðgerða stjórnvalda ekki enn farið að sjá stað. (Forseti hringir.) Ég hef þá trú að átakið Hefjum störf muni skipta verulegu máli við að breyta ástandinu.