151. löggjafarþing — 76. fundur,  12. apr. 2021.

aflétting sóttvarnaaðgerða.

[15:35]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða fyrirspurn. Það er rétt að við sjáum nágrannalönd okkar vera að kynna slíkar áætlanir, ekki endilega með dagsetningum en ákveðnum viðmiðum út frá framgangi bólusetninga. Það er raunar merkilegt að fylgjast með því að þessar afléttingaráætlanir miðast kannski flestar að því að stefna í það ástand sem við erum í, þ.e. verið er að heimila fólki að fara í klippingu og opna skóla. Það minnir okkur auðvitað á hversu vel hefur tekist að hemja þennan faraldur á Íslandi án þess að vera með mjög harðar aðgerðir, nánast útgöngubann eins og svo margar þessara þjóða hafa þurft að ganga í gegnum. Við heyrum það líka í fréttum frá Bretlandi þar sem hefur gengið vel í bólusetningum en um leið hefur samfélagið nánast verið lamað mánuðum saman.

Við höfum unnið að því, svo að ég svari hv. þingmanni, og höfum fengið meiri fullvissu fyrir því, að afhendingaráætlanir bóluefna standist. Þær stóðust á fyrsta ársfjórðungi og því teljum við okkur betur í stakk búin til að horfa til lengri framtíðar, þ.e. hvað varðar áhrif bólusetninga á sóttvarnaráðstafanir. Meðan óvissan var sem mest um hvernig framleiðsla bóluefnaframleiðanda myndi ganga hefði eðlilega lítið hald verið í slíku. Mitt mat er að ákveðin tímamót hafi orðið í því og við séum að sjá miklu meira sannfærandi áætlanir frá bóluefnaframleiðendum sem gera okkur kleift að horfa til lengri tíma. Ég get svarað hv. þingmanni því til að við munum vinna að slíkri sýn á vettvangi ríkisstjórnar. Við vitum hvar við teljum að við verðum stödd um mitt ár. Þá teljum við að bólusetning verði hafin eða henni lokið hjá 240.000 af þeim 280.000 sem ætlunin er að bólusetja þannig að við ættum, miðað við að þær áætlanir gangi eftir, að geta sett upp einhverjar vörður á þeirri leið.