samningar við sérgreinalækna.
Hæstv. forseti. Ég vildi beina þeirri fyrirspurn til hæstv. heilbrigðisráðherra hvernig staðan sé varðandi samninga við sérgreinalækna. Það er kunnara en frá þurfi að segja að það hefur verið ófrágengið mál, sem varðar samninga við þennan hóp, frá 2018, að ég hygg. Það hefur nokkrum sinnum þurft að framlengja greiðslur eða reglugerðir sem gera ráð fyrir greiðslum til bráðabirgða og nú skilst mér að fyrir helgi hafi verið birt á samráðsgátt drög að nýrri reglugerð um þessi mál. Mér finnst ástæða til að spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra hvar þessi mál standi, hvort hún geti gefið okkur lýsingu frá sinni hlið á því hvernig stendur á því að samningar hafi ekki náðst á þessum tíma og hvernig hún sjái framtíðina fyrir sér í samningum ríkisins við þennan hóp sem gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki í okkar heilbrigðiskerfi. Auðvitað hefur verið ákveðin togstreita milli sjónarmiða um það hvað eigi að fara fram á vegum hins opinbera og hvað á vegum einkaaðila en ég spyr hvort hæstv. ráðherra sjái fyrir sér breytingar í þeim efnum.