151. löggjafarþing — 76. fundur,  12. apr. 2021.

um fundarstjórn.

[15:55]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Ég kem hingað upp til að taka undir með félögum mínum sem hafa undrað sig á þessum vinnubrögðum. Við erum á sama tíma að kljást við það þekkta vandamál að þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar er óskalisti sem litlar líkur eru á að fáist uppfylltur. Ég hef ekki tölu yfir hversu mörg af þeim málum sem ríkisstjórnin lagði af stað með í haust eru ekki komin til afgreiðslu í nefnd og munu líklega ekki gera það úr þessu. En þau eru býsna mörg og akkúrat þess vegna vekur sérstaka furðu að fara í endurvinnslu, eins og þetta hefur verið nefnt hér af hálfu ýmissa þingmanna, þ.e. að ráðherrar ríkisstjórnarinnar frumflytja hér að eigin sögn mál sem þegar hafa verið flutt af hálfu annarra þingmanna og eru komin langt í vinnslu. Ég verð að segja að þótt dæmin séu til — og þau voru sannarlega ekki, svo sanngirni sé gætt, búin til í tíð þessarar ríkisstjórnar þótt þetta sé býsna langt gengið — þá á þetta mál dómsmálaráðherra sér næstum því algjöra samsvörun í máli sem er að klára sitt ferli hér inni á þingi og það er vandræðalegt. Það er ráðherra til skammar.