um fundarstjórn.
Herra forseti. Já, það er auðvelt að taka undir það sem hefur komið fram og kannski ekki síst þar sem maður heyrir svo oft, einkum frá stjórnarliðum, gagnrýni á þingmannafrumvörp, að þau séu svo illa unnin. Það er rosalega pínlegt þegar nákvæmlega sama frumvarp kemur frá ráðuneyti, sem á einhvern veginn að vera betur unnið; það er eins og fagmennska verði til við það eitt að einhver afritar og límir. Þetta er ekki heldur jákvætt út frá þeim forsendum að við höfum takmarkaðan tíma. Við þurfum að nýta tímann vel og það er verið að sóa tíma þingsins í að endurtaka sig aftur og aftur. Það eru mörg mál sem eru lögð fram á hverju einasta ári. Það mætti líka í þessu samhengi ræða hvort ekki mætti leyfa þingmálum að lifa milli þinga en í öllu falli þurfum við að hætta að sóa tíma til þess eins að einhver ráðherra fái klapp á bakið.