151. löggjafarþing — 76. fundur,  12. apr. 2021.

um fundarstjórn.

[16:00]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Ég vil einmitt komið inn á þá tregðu sem ríkir um það að taka við góðum málum stjórnarandstöðu og afgreiða þau. Sá sem hér stendur hefur þrim sinnum, eins og þeir segja á Austfjörðum, þrisvar sinnum lagt fram frumvarp um að ríkisstarfsmenn geti unnið til 73 ára aldurs ef þeir kjósa og geta og vilja. Í góðri tilraun til að ná góðri sátt um þinglok fyrir ári síðan var þessu frumvarpi vísað til ríkisstjórnar gegn því loforði að frumvarp kæmi fram frá ríkisstjórninni fyrir síðustu jól um sama efni. Við það hefur ekki verið staðið þannig að tregðan til að taka góð mál og afgreiða þau fljótt og vel tekur á sig ýmsar myndir, herra forseti, m.a. þessa. Þetta er í besta falli hallærislegt. Við getum orðað það þannig. En þetta eru náttúrlega engin vinnubrögð.