151. löggjafarþing — 76. fundur,  12. apr. 2021.

um fundarstjórn.

[16:04]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Það kemur mér nokkuð á óvart að það sé í góðu lagi að sams konar þingmál séu í gangi í þinginu á sama tíma, a.m.k. eru það þær leiðbeiningar sem við hv. þingmenn fáum ef við fáum góðar hugmyndir og viljum koma þeim fram, að það sé því miður of seint því að í smíðum sé frumvarp sem sé sama efnis eða svipaðs efnis. Af sjálfu leiðir að þá er sjálfhætt. Við skulum ekki gera það að aðalatriði, en maður hlýtur að spyrja hæstv. forseta hvort það geti talist góð vinnubrögð að vera með sams konar mál í gangi í þinginu og láta þau jafnvel velkjast um þangað til ráðherra þóknast að leggja fram sams konar mál þegar þingvilji virðist vera fyrir framgangi málsins. Hvort það séu ekki óheppileg vinnubrögð og hvort það sé þá ekki í það minnsta ráð að sameina mál eins og það sem okkur hefur orðið tíðrætt hér um í dag um barnaníð, að það liggi í hlutarins eðli að það verði bara tekið inn með þingmannamálinu og þingmannamálið verði þá það mál sem verður að veruleika þar sem málin eru nánast eins, efnislega er enginn munur á þeim. (Forseti hringir.) Er ekki bragur á því af hálfu þingsins að láta ekki framkvæmdarvaldið ryðjast inn og taka þingmannamálin eignarnámi en strika út höfundarréttinn?