151. löggjafarþing — 76. fundur,  12. apr. 2021.

ávana- og fíkniefni.

714. mál
[16:10]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Fyrst um það þingmál sem hér er til umfjöllunar, sem er frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, þess efnis að kaup og varsla á takmörkuðu magni ávana- og fíkniefna til eigin nota, svokölluðum neysluskömmtum, verði heimil. Ég vil taka það fram hér, í framsögu minni um þetta mál, að um er að ræða mjög mikilvæga breytingu sem hvílir á heildstæðri hugmyndafræði um skaðaminnkun. Það eru nokkur skref sem hafa sannarlega verið stigin hér á landi og að því er nokkur aðdragandi. Fyrst og fremst átti sá aðdragandi sér stað í tíð hæstv. þáverandi heilbrigðisráðherra, Kristjáns Þórs Júlíussonar, og þá með þingsályktun frá þingflokki Pírata en með góðu samstarfi þess þingflokks og þáverandi hæstv. heilbrigðisráðherra tókst að skapa ákveðinn grundvöll fyrir skýrslu og stefnumótun sem varð til í heilbrigðisráðuneytinu og er þar til og skiptir miklu máli í þeim skrefum sem verið er að stíga, hvort sem er í því frumvarpi sem hér er til umræðu eða í því frumvarpi sem varð að lögum fyrr á kjörtímabilinu, sem er frumvarp um neyslurými.

Ég finn fyrir því hér, og líka aðeins í umræðu um fundarstjórn forseta rétt á undan, að fólki er eðlilega mikið í mun að ættfræði þessa málaflokks sé haldið til haga. Ég hef mikinn skilning á því og ég vil að það komi hér strax fram að sú sem hér stendur hefur lagt áherslu á að halda alltaf til haga, þegar þessi mál hafa verið rædd, því frumkvæði sem kom úr þingflokki Pírata á sínum tíma og fékk síðan brautargengi, eins og hér hefur verið rakið.

Þingmannafrumvarpið var lagt fram á 150. löggjafarþingi og er endurflutt á yfirstandandi þingi, og þar er hv. þm. Halldóra Mogensen fyrsti flutningsmaður. Það er rétt að fram komi að frumvarpið sem hér er til umræðu byggir að hluta til á þeirri vinnu og þeim umsögnum sem bárust um það frumvarp í meðförum hv. velferðarnefndar. Mitt mat er að það sé gríðarlega mikilvægt að stíga skref í málaflokki af þessu tagi með eins breiðri samstöðu og nokkurs er kostur. Okkur lánaðist að taka ákvörðun um neyslurými í samstöðu í þingsal og það var skref sem var kannski miklu róttækara en við áttuðum okkur á þegar við vorum að taka það. Þó að það varðaði fyrst og fremst rekstur neyslurýma þá snerist það um þá grundvallarafstöðu að meðhöndla eigi vanda vímuefnaneytenda í íslensku samfélagi í heilbrigðiskerfinu fremur en í dómskerfinu. Þetta er grundvallaratriði.

Um leið er rétt að halda því til haga að efasemdir um gagnsemi hinnar alþjóðlegu baráttu gegn vímuefnum hafa farið vaxandi og verið áberandi í samfélagsumræðu, bæði alþjóðlegri og innlendri, og hafa verið studdar rannsóknum og alþjóðlegri stefnumótun. Rannsóknir hafa beinlínis sýnt að ekki er beint orsakasamhengi milli afglæpavæðingar neysluskammta til eigin nota og marktækrar aukningar á notkun ávana- og fíkniefna í samfélaginu. Það er einfaldlega ekki hægt að styðja slíkt með rannsóknum. Jafnframt hefur verið sýnt fram á að refsingar hafa lítil sem engin áhrif á hegðun einstaklinga heldur eru margir aðrir samverkandi persónubundnir þættir sem hvetja einstakling til að breyta hegðun hvað vímuefnanotkun varðar. Það að banna öll fíkniefni eykur, samkvæmt rannsóknum, jaðarsetningu notenda efnanna og stuðlar að útskúfun þeirra frá samfélaginu. Slíkar aðstæður draga úr áhrifamætti úrræða sem ætluð eru til verndar heilsu notenda, svo sem skaðaminnkunar og annarrar heilbrigðisþjónustu sem krefst óskoraðs trausts milli þjónustuaðila og skjólstæðings. Þetta traust hefur til að mynda verið byggt upp með mjög mikilvægum og gagnlegum hætti hjá Frú Ragnheiði. Þar hafa orðið til sprotar sem við eigum að byggja á í annarri heilbrigðisþjónustu fyrir þennan viðkvæma hóp.

Með því að afnema með þessu frumvarpi, verði það að lögum, refsingu vegna kaupa og vörslu neysluskammta vímuefna ætlaðra til einkanota væri stigið stórt skref í áttina að viðhorfsbreytingu í íslensku samfélagi gagnvart fólki sem notar hvaða vímuefni sem er. Þannig mun frumvarp þetta, verði það að lögum, draga úr jaðarsetningu og fordómum í garð þeirra sem nota vímuefni sem hingað til hafa verið bönnuð, sem aftur gæti orðið til þess að fleiri einstaklingar en ella myndu sækja sér viðeigandi aðstoð til að takast á við fíknisjúkdóma og afleiðingar þeirra. Í því skyni er vonast til að með frumvarpinu muni viðhorf almennings gagnvart notendum vímuefna verða mannúðlegra og það muni sporna gegn fordómum og draga úr þeirri skömm sem fylgir því að vera notandi vímuefna. Það er mín sannfæring, sem er studd með alþjóðlegum rannsóknum, að verði frumvarp sem þetta að lögum muni það bjarga mannslífum. Þess vegna er þetta mannúðarmál fyrst og fremst og heilbrigðismál.

Gildishlaðin orð sem við ræddum aðeins hér þegar við ræddum málin fyrr varðandi neyslurýmin, sem leiða til neikvæðra hugrenningatengsla, stuðla líka að jaðarsetningu notenda vímuefna. Í stað orðanna fíkill, fíkniefni, fíkniefnaneytendur og dópistar ættum við að nota orðin vímuefni og notendur vímuefna svo að einhver dæmi séu nefnd. Það liggur því við að næsta skref væri að breyta heiti laganna en með bættri orðræðu náum við betri árangri og smám saman verður þá viðhorfsbreyting í málaflokknum.

Virðulegi forseti. Markmið frumvarpsins er, eins og fyrr segir, að breyta lögum um ávana- og fíkniefni á þá leið að kaup og varsla á takmörkuðu magni af ávana- og fíkniefnum til eigin nota, svokölluðum neysluskömmtum, verði heimil. Í því samhengi verður að gera skýran greinarmun á afglæpavæðingu neysluskammta af ávana- og fíkniefnum til eigin nota, sem hér er til umræðu, og lögleiðingu ávana- og fíkniefna sem einnig hefur verið í umræðunni undanfarin ár. Með frumvarpi þessu er einungis um það að ræða að kaup og varsla á takmörkuðu magni af ávana- og fíkniefnum til eigin nota verði heimil. Eftir sem áður er meðferð, innflutningur, útflutningur, sala, skipti, afhending, móttaka, framleiðsla, tilbúningur og auk þess kaup og varsla á ávana- og fíkniefnum sem er yfir hinu skilgreinda takmarkaða magni efna skilgreind óheimil og refsiverð samkvæmt lögum. Með öðrum orðum er verið að afnema refsiábyrgð fyrir kaup og vörslu á takmörkuðu magni efnis en þrátt fyrir það eru efnin eftir sem áður bönnuð. Ég vil leggja áherslu á þennan mun, en þar með er ekki sagt að ég sé að gera sérstaklega grein fyrir afstöðu minni í því máli heldur fyrst og fremst að gera grein fyrir því hvað það er sem hér er verið að leggja til. Með lögleiðingu ávana- og fíkniefna er átt við að lög sem banna vörslu og neyslu fíkniefna yrðu felld úr gildi og það væri annað skref en hér er verið að stíga.

Ég vil sérstaklega vekja athygli á því að þrátt fyrir að hér sé einungis verið að boða efnislegar breytingar á þremur ákvæðum laganna er hér um mjög mikilvægt mál að ræða enda boðar frumvarpið gagngerar breytingar frá núgildandi lögum. Í umræddu frumvarpi eru boðaðar breytingar á lögum um ávana- og fíkniefni á þá leið að kaup og varsla á takmörkuðu magni af vímuefnum til eigin nota, svokölluðum neysluskömmtum, verði heimil en í frumvarpinu er jafnframt kveðið á um að ráðherra skuli í reglugerð kveða á um hvaða magn ávana- og fíkniefna geti talist til eigin nota. Nauðsynlegt þykir að gera það með reglugerð þar sem markaður með fíkniefni er síbreytilegur og brýnt að geta brugðist við og bætt inn efnum í reglugerðinni og breyta stærðum neysluskammta án þess að til lagabreytinga þurfi að koma.

Þá er rétt að benda á að verði frumvarpið að lögum falla sektarheimildir lögreglu vegna brota á vörslu á neysluskömmtum ávana- og fíkniefna niður. Jafnframt er í frumvarpinu lagt til að ekki skuli gerð upptæk efni sem eru í vörslu einstaklinga sem eru 18 ára og eldri þegar magn þeirra er innan þess sem talist getur til eigin nota. Ástæða þess að ákveðið var að breytingin næði bæði til kaupa og vörslu, sem er breyting frá öðrum þeim málum sem hér hafa verið til umfjöllunar, ávana- og fíkniefna til eigin nota, er sú að ómögulegt er að ímynda sér aðstæður þar sem notandi vímuefna hafi undir höndum neysluskammta af efnum án þess að hafa þurft að útvega sér efnin með einhverjum ráðum. Ef einungis varsla ávana- og fíkniefna er heimiluð en öflun þeirra enn skilgreind refsiverð háttsemi er raunveruleiki notenda sá að ekki er búið að afglæpavæða neysluskammta til eigin nota að fullu. Í frumvarpinu er því lagt til að sala á ávana- og fíkniefnum verði enn bönnuð að fullu en kaup á neysluskömmtum heimiluð. Slík útfærsla á lagaákvæði er sannarlega óvenjuleg en er þó þekkt í íslenskum lögum og minnir um margt á sænsku leiðina sem innleidd hefur verið í íslenskum rétti, þar sem lögfest var að greiðsla fyrir vændi væri refsiverð og gengið út frá því að ábyrgðin á viðskiptunum hvíldi á herðum kaupanda en ekki seljanda. Í þeirri útfærslu sem lögð er til í þessu frumvarpi væri þessu öfugt farið, þ.e. sala á ávana- og fíkniefnum yrði refsiverð og gengið út frá því að ábyrgðin á viðskiptunum hvíldi á herðum seljanda, enda standa margir af þeim sem kaupa ávana- og fíkniefni til eigin nota höllum fæti í samfélaginu. Rétt er þó að taka fram að eingöngu er lagt til að heimilt verði að kaupa ávana- og fíkniefni upp að því marki sem heimilt væri samkvæmt lögum og reglugerð, þ.e. innan fyrir fram skilgreinds neysluskammts. Kaup á vímuefnum umfram það magn yrðu áfram refsiverð.

Virðulegi forseti. Með frumvarpinu er lagt til að heimild lögreglu til upptöku efna nái ekki til þeirra efna sem eru í vörslu einstaklinga 18 ára og eldri þegar magn efnanna er innan þess sem talist getur til eigin nota. Þannig verði tryggt að efni til eigin neyslu verði ekki haldlögð jafnvel þótt þeirra kunni að hafa verið aflað með ólögmætum hætti. Lögreglan mun þá hvorki hafa heimild né skyldu til að gera slík efni upptæk. Tilgangurinn með því er að bregðast við þeim aðstæðum sem upp hafa komið þegar einstaklingar sem glíma við vímuefnavanda hafa veigrað sér við að hringja eftir bráðaaðstoð eða leita sér aðstoðar af ótta við handtöku eða að lögregla haldleggi neysluskammta þeirra. Jafnframt er lagt til að undantekningin taki ekki til einstaklinga yngri en 18 ára. Þrátt fyrir að rétt þyki að treysta fullorðnum einstaklingum til að taka sjálfir ákvarðanir um neyslu vímuefna þykir rétt að heimild fyrir haldlagningu verði til staðar fyrir börn þar sem þau hafa ekki í öllum tilvikum fullan þroska til að meðhöndla efni af þessu tagi.

Við samningu frumvarpsins var litið sérstaklega til reynslu Portúgala, Norðmanna og Oregonfylkis í Bandaríkjunum en þar hafa neysluskammtar til eigin nota annaðhvort þegar verið afglæpavæddir eða slík vinna er í ferli. Áfram verður litið til reynslu í öðrum löndum, verði frumvarp þetta samþykkt, við skilgreiningu á neysluskammti til eigin nota en í frumvarpinu er kveðið á um að þegar lögin taki gildi, 1. janúar 2022, liggi fyrir reglugerð þar sem kveðið er á um hversu mikið magn efna verði heimilað til eigin nota. Við þá vinnu þarf að gera ráð fyrir ítarlegu samráði við þá aðila sem hagsmuna hafa að gæta, svo sem notendur, ríkissaksóknara og lögregluna.

Að lokum er rétt að nefna að frumvarpinu er ætlað að styðja við fyrrnefnd breytingalög um neyslurými en samkvæmt gildandi lögum er heimilt að gera upptæk ávana- og fíkniefni og refsa þeim sem hafa þau á sér. Markmið þeirra laga er að veita notendum vímuefna sem sprauta sig með ávana- og fíkniefnum í æð athvarf til að neyta efnanna við bestu mögulegu aðstæður með það að markmiði að koma í veg fyrir frekari óafturkræfan skaða og auka lífsgæði og bæta heilsufar þeirra. Ljóst er að þau lög ná ekki markmiði sínu að fullu fyrr en kaup og varsla neysluskammta verður afglæpavædd, þ.e. gerð refsilaus. Í samskiptum heilbrigðisráðuneytisins við sveitarfélög, varðandi það að opna neyslurými, hafa sveitarfélögin lýst yfir áhyggjum af réttarstöðu starfsmanna sinna þegar þeir aðstoða vímuefnaneytendur við neyslu. Þær áhyggjur verða að engu, ef frumvarp þetta verður að lögum, vegna þess að slík háttsemi yrði ekki ólögleg.

Þrátt fyrir að frumvarpið feli í sér afmarkaðar aðgerðir er ljóst að með því er stigið stórt skref í átt að skaðaminnkun. Þegar hefur lögum um ávana- og fíkniefni verði breytt þannig að rekstur neyslurýma er heimilaður en með þessu frumvarpi er tekið eitt skref enn í átt að skaðaminnkun. Jafnframt standa vonir til þess að hægt verði að leggja fram heildstæða stefnu í áfengis- og vímuefnamálum, m.a. á grundvelli tillögu til þingsályktunar um lýðheilsustefnu sem nú liggur fyrir Alþingi og er til umfjöllunar í hv. velferðarnefnd. Þá verði lögð aukin áhersla á forvarnir, meðferðarúrræði og skaðaminnkandi verkefni en á sama tíma er mikilvægt að stíga fleiri skref í átt að mannúðlegra fyrirkomulagi í málaflokknum.

Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir meginefni frumvarpsins sem hér er til umræðu og leyfi mér að leggja til að því verði að lokinni 1. umr. vísað til velferðarnefndar og 2. umr.